kreppa

         

  Fékk þetta sent í email og vill deila þessu með þeim sem koma hingað!!! *versó gúd*

VIÐ SOFNUÐUM Á VERÐINUM....   
Nú vandi steðjar okkur að og virðist endalaus
velmegunin orðin slík að fjandinn sleppur laus
krepputalið allsstaðar að æra sérhvern mann
og klúðrið alveg skelfilegt í kringum óhroðann. 


 Dimmir skuggar dansa yfir sjokkeraðri þjóð
sem fyrir nokkrum dögum þótti snjöll og ráðagóð
 útrásina miklu studdi hún svo trú og dygg
fjármál landsins virtust vera örugg öll og trygg  

 En hættan lá í leyni og við gleymdum okkur öll
við það að eyða peningum og virkja ár og fjöll
kaupa allt sem hugur girntist bæði hér og þar
kaupa merkjaverslanir já heilu keðjurnar.  

Kaupa jeppa, kaupa hús og verða rík og flott
Kaupa höll með garðhýsi og kaupa heitan pott
Kaupa líf sem gæti virst svo fullkomið og smart
Kaupa álit annarra en njóta þess þó vart.  

Verðbólgan að sliga allt en við svo rosa klár
Nastaq þetta, Össur hitt og Dow Jones algjört fár
Vildum sýna veröldinni þó við séum smá
við gætum reddað heiminum ef þannig stæði á.

Nú stoltið sært og dapurlegt og þjóðin öll í sorg
sársaukann og vonbrigðin má sjá í bæ og borg
Bakland það sem fólkið taldi tryggja efri ár
tekið verður upp í skuld,
en skilur eftir sár.
 

 Þó það sé þyngr´en tárum tak´ að sættast þetta við
tilfinningar splundraðar og dapurt ástandið
þá saman öflug getum verið, ákveðin og sterk
fámenn þjóð með styrk sem getur gert mörg kraftaverk. 
 
Upp með ermar, upp með bros og allir saman nú
aldrei meigum gefast upp né glata okkar trú
knúsumst bara þéttingsfast og hefjumst handa við
að bæta það sem bæta má og efla mannlífið.
B.H 2008

 En...núna er dagurinn í dag íslenskur veruleiki...og  því skylda okkar fullorðnu að takast á við hann...með jákvæðni...bjartsýni og krafti...nýta orkuna sem við eigum..og byggja börnunum okkar og barnabörnum nýtt og betra þjóðfélag...breyta áherslunum...hlúa að og gefa hvert öðru tíma...njóta þess sem er...og hætta að hugsa um það sem við höfum ekki....  Við erum þjóð elds og ísa...hamfara og hremminga...baráttu og sigurvilja og við gefumst ALDREI upp....því við getum ALLT....

       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband