gaman -saman!!

Málið er að eftir að "kreppan" svokallaða lenti hér á Landinu góða :-) nenni ég hreinlega ekki að vera á blogginum, hvorki commenta, né skrifa. ... það hryggir kannski einhvern eða fólki er bara sama, kannski bara gleður það einhvern, það kom hvort sem er ekkert nema bull og vitleysa frá mér hahahah!!!!!

Allavega, hafði ég mestu ánægjuna á bloggi að skoða myndir sbr hjá henni Ásthildi Cesil, og heyra hvernig fólki liði og eða eitthvað um hagi þess. Ég hef aldrei haft gaman af að lesa um fréttatengt blogg, mér hefur alltaf verið sama hvernig fólk tekur hinni og þessari fréttinni, því miður - en auðvita höfum við öll skoðun á þessu og hinu... en af hverju við urðum fátæk þjóð, hverjum það er að kenna og þar fram eftir götunni... ég hef bara mína skoðun á því. Við getum ekki bakkað.... bara horft fram á veginn og reynt að bæta okkur --- því batnandi fólki er best að lifa... batnandi þjóð!!!!!

En ég er allavega eins happy og myndin að ofan sýnir :-)))  á mælikvarða 1 - 10 ..á bilinu 7-8 hahah!!!!  Ég tel mig hafa fundið það sem sameinar blogg-msn-og myspace og það er facebook. Svo þar er ég nú..... og líkar það vel
Elsku bloggvinir - látið liggja vel á ykkur, góða daga og heilsu !!!
knús á línuna alla ***


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig elskuleg mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2009 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband