lifandi :-)
15.4.2007 | 16:10
Já eins og þeir sem kíkja hingað, (reyndar ekki margir!) sjá , nenni ég ekki að stunda bloggheiminn þessa stundina.
Lífið er hvorki hringur né lína, og þroskaleiðir manna eru margar og margvíslegar. .. lífið er tilgangur, og tilgangur hvers manns birtist í löngun, löngun til að gera vissa hluti......OG MÍN LÖNGUN ER EKKI AÐ BLOGGA NÚNA (nokkuð háfleig skilgreining til að segja einfaldlega að ég nenni ekki að blogga)
Eins og ég hef alltaf sagt; Hægara er að kenna heilræðin, en að halda þau.
Munum að kærleikurinn er ein að aðalgötum lífshamingjunnar. Við hann er hvorki stansmerki né biðskylda. Hann er alltaf öllum opinn - þeim sem leita hans.
Verk okkar, orð okkar og allar hugsanir okkar eru fræ sem við sáum í okkar eigin garði. Ræktum því garðinn okkar
Lifið heil!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.