hvítu tjöldin þjóðhátíð..
2.8.2007 | 10:56
Ég sá mig knúna til að blogga um þessa frétt (annars læt ég vera að blogga um fréttir almennt) .. þar sem rígur myndaðist í dalnum vegna tjaldstæða...í Eyjum
Einhver bloggaði um að, af hverju ekki að halda uppboð á tjaldstæðum, þá myndu IBV ná þar í peninga því allt gengur þetta náttúrulega út á að ná í pening fyrir IBV íþróttahreyfinguna, þegar annar svaraði´eða commentaði um að Maggi Kristins myndi þá kaupa öll tjaldstæðin og selja þau svo helmingi dýrar´, og þá sæti verkamaðurinn ekki við sama borð og yfirmaðurinn... þetta væri hluti af þjóðhátíðinni að rífast um tjaldstæði taldi hann ..
Nei, mín skoðun er sú; að uppboðið kæmi alveg til greina, Maggi Kristins færi ekki að blanda sér þannig inn í það,en eins og þetta er í dag þá bara;......EIGA MENN TJALDSTÆÐI, EÐA TELJA SIG EIGA ÞAU FRÁ ÖRÓFI ALDA...... og enginn myndi voga sér að tjalda þar (td er þetta heil gata Veltusund) og fleiri...
Ef þessir menn eru ekki búnir að setja band í stað súlna löngu fyrir dagssetn. sem má tjalda eru þeir amk mættir deginum fyrr og setja sitt........það er enginn möguleiki fyrir almúgann að ná stæðum nema þar sem er laust og þessir (helm eyjamanna) búnir að planta í "sín" stæði.
þannig að uppboð á tjaldstæðum tel ég ekkert svo afleitt.....það þarf einhverja breytingu og því ekki að fá pening fyrir IBV í staðinn...
Þannig er þetta í raun, enda lögreglan ekkert að hafa afskipti af smá ríg....
Nú eru þó allir IBV(arar) áður var það ÞÓR og TÝR heheh!!!
En óska öllum Gleðilegrar þjóðhátíðar, og að veðurGuðinn verði með ykkur
í dalnum ** ég raula þjóhátíðarlagið hér á Spáni á meðan
![]() |
Fyrstu Þjóðhátíðargestir mættir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ættir heldur að raula "mér finnst rigningin góð"
Halla Rut , 3.8.2007 kl. 00:27
Nei, þessa þjóðhátíð var víst auðvelt að raula ; í sól og sumaryl, er gott að vera til...
G Antonia, 5.8.2007 kl. 08:19
Hvaða kæruleysi er þetta að vera á Spáni á Þjóðhátíð????
Vilborg Traustadóttir, 9.8.2007 kl. 22:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.