Góða helgi
1.3.2008 | 12:46
Því meira sem maður skoðar moggabloggið, þeim mun fleiri sér maður hér sem maður kannast við og langar að bæta við blogghringinn sinn, þeas hringinn sem maður fer og kíkir á.. er ég sest niður og tek smá rúnt um Veraldarvefinn.. Fullt af Vestmannaeyingum
"eins og mér" og þar sem ég er brottflutt er jú alltaf gaman að lesa góðar fréttir frá Eyjamönnum .
Þannig að þó þetta mbl blogg sé bara "hliðarblogg" hjá mér, þar sem aðalbloggið er á blog.central.... kemur nú til greina að maður fari að virkja þetta blogg betur, hér er FÓLKIÐ ...virðist vera
Mottó dagsins í dag; ALWAYS BE A LITTLE KINDER THAN NECESSARY!!!
Athugasemdir
Sæl Guðbjörg.
Þú veist það jafnvel og ég að það er sama hvar á jörðinni við erum stödd þá breytist það ekki að við erum Vestmannaeyingar og njótum þess.
Gangi þér allt í haginn
Snorri í Betel
Snorri Óskarsson, 1.3.2008 kl. 20:29
Hæ hæ, gama að sjá hreyfingu hjá þér...loksins!!!! Diskarnir eru æði..."góssið"...verst ef maður hleypur í spik aftur því það er svo gaman að borða af þeim ;-).
Vilborg Traustadóttir, 1.3.2008 kl. 23:13
Takk fyrir comment * Já það er oft gaman að lesa góðar fréttir úr Eyjum Búkollabaular, kveðja til þín og þinna sömuleiðis *
Takk sömuleiðis Snorri og kveðja til Hrefnu Brynju, Vestmannaeyingar eru og verða alltaf Eyjamenn, og eru stoltir af því!!!!!
Heheh!!! það væri nú bara fyndið að skilja eftir fullt af kilóum í Póllandi og kaupa postulíns-diska í staðinn ... sem síðan gerir það að verkum að maður bara fær öll kilóin tilbaka aftur hehehehe!!!!!! Vona að þér líði vel Vilborg og gangi vel, alltaf gaman að kíkja á þína síðu ***
G Antonia, 2.3.2008 kl. 03:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.