góðan dag!
4.3.2008 | 13:17
Verð nú að blogga nokkrar línur þar sem ég er komin með fullt af bloggvinum - Ég fer nú að hallast á það að mbl.is bloggið sé nú bara skemmtilegt. En ég er svo vanaföst og trygglynd þannig að ég get ekki hugsað mér að yfirgefa mitt aðal-blogg sl 2 ár alveg, en þar er ég svona meira á heimaslóðum :-)
Lífið hér í Keflavíkinni gengur sinn vanagang, hér rigning í augnablikinu þannig að það a einhversstaðar eftir að leka inn hjá einhverjum í þessari hláku sem orðin er núna. En ég segi alltaf; allt er betra en snjórinn, og þar spilar líka hálkan inní, hún er bara versti óvinur minn. Ég auðvita líka hrædd um yngsta prinsinn minn sem er í Verzlunarskólanum og þarf að keyra Reykjanesbrautina 2svar á dag.
A hug is a great gift -
One size fits all!!!!
Athugasemdir
..gaman að sjá þig á moggablogginu... tekur reyndar smá stund að venjast nýju svæði...maður er svo vanafastur.....eða þannig.. hafðu það sem allra best
Guðný Bjarna, 5.3.2008 kl. 18:30
oh ég elti þig bara heheheh!!!! Hef ekki kunnað svo vel við mig hér, en það má öllu venjast, hér er annað fólk finnst mér og fleira fólk.....ef maður ætlar að vera með, þá er maður ekki inn nema skrifa hér ... en það verður aldrei eins "opið" það sem maður skrifar hér, en góðar fréttir og um daginn og veginn....svona til að vera með!!!!
Sömuleiðis gbljósa mín, hafðu það gott..
G Antonia, 5.3.2008 kl. 20:18
Tiger, 7.3.2008 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.