Lífsánægja

Islendingur einn var staddur við höfnina í litlu sjávarþorpi á Spáni. Hann sá lítinn bát koma að.
Einn maður var um borð og margir stórir túnfiskar. Íslendingurinn spurði fiskimanninn hve lengi hann hefði verið að veiða þetta. "Smástund", var svarið.
"Af hverju veiddir þú þá ekki meira?" "Ég hef ekkert að gera við meira," svaraði fiskimaðurinn, þetta nægir fjölskyldu minni vel.
"Hvað gerir þú þá við tímann?" Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn.
 "Ég sef fram eftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "síesta" með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér kaffi eða vinglas og leik á gítar með vinum mínum."


Ég get gefið þér góð ráð," sagði Íslendingurinn. Ég er með MBA í Viðskiptafræði. Þú átt að vera lengur á sjónum. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ert þú ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verzlað beint við verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum!!!
Þá getur þú ekki búið hér lengur en flytur til höfuðborgarinnar.
Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn
Svona 20-25 ár. En hvað svo? spurði fiskimaðurinn aftur


"Þá kemur stóra stundin. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með margar milljónir..
"já"; sagði fiskimaðurinn, en "hvað svo"?
Íslendingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan;
"Þá flytur þú  í lítið fiskiþorp, sefur fram eftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við barnabörnin, tekur "síesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas eða kaffisopa og hlustar á tónlist með vinum þínum Wink

Já það er vandlifað í þessu lífi  og tekur menn alla ævina að læra listina að LIFA.  Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott færsla, og sagan svo sönn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 14:37

2 Smámynd: Tiger

  Ójá, lífið fer sífellt í hringi og við lendum alltaf aftur og aftur á sama staðnum ... bara fyndið.

Tiger, 9.3.2008 kl. 18:31

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Frábær saga.

Guðjón H Finnbogason, 9.3.2008 kl. 20:53

4 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Gott að vera nægjusamur og ánægður með maður hefur þá nýtur maður lífsins!

Leyfa bara hinum að elta skottið á sér!

 Nýjar myndir á Goggalandi

þú ert velkomin í  ilmandi vöfflur

Knús til þín og góða nótt

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 9.3.2008 kl. 22:09

5 Smámynd: G Antonia

Já kæru bloggvinir, Búkollabaular, Ásthildur Cecil og Guðjón ég er sama sinnis, fannst þessi saga eitthvað svo sönn og rétt, þó maður sé engu betri og fljóti  bara með ....


hehe! Tigercopper, þú færð mig alltaf til að brosa, við snúumst í hringi það er heilagur sannleikur...en á meðan við snúumst er betra að reyna að laga sig að lífinu, eða er það kannski lífsins að laga sig að okkur

Hjördís vinkona mín, æðislegar myndir og í mínum augum ert þú súper-kona, ekki bara súper mamma og hver veit nema maður eigi eftir að droppa í vöfflur einn góðan dag  eigðu góða viku framundan

G Antonia, 10.3.2008 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband