Önnur rök tilverunnar...
10.3.2008 | 13:36
Ég svaf og mig dreymdi.....
Engill leiddi mig við hönd sér inn í land sem var miklu fallegra en allt það sem ég hafði áður augum litið. Alls staðar voru börn að leik, þau voru yndisleg. Ástfangin pör á gangi alls staðar og allir virtust ánægð með lífið.
Engir í fýlu, stressaðir eða útigangar, fullir eða dópaðir, engir að rífast og og .. og þar voru engin sjúkrahús, engin fangelsi, engin lögregla, engir glæpir og engin tár.
En ég hrópaði hátt; "Ég vil fara heim". Landið er fagurt, en......
Hér er ekkert hægt að eignast neina sanna vini því sönn vinátta er vökvuð tárum og blómgast aðeins í svalviðri mótlætis. Hér er ekki um neinn fastan vilja að ræða.
Hér er engin gleði vegna þess að hér er engin sorg.
Og ég vaknaði.!!
Það eru nefnilega ekki síður hjartasorgirnar en hamingjustundirnar sem skapa innileg tengsl innan fjölskyldunnar og milli vina. Þó ég vildi óska að ég gæti bjargað öllum frá sorgum og áföllum og mistökum í lífinu,.... þá væru þau bara ekki lengur eitt af okkur hinum hér á þessar jörð
Þannig það eina sem við getum gert, er að fá það besta út úr hverjum degi
Athugasemdir
Tiger, 10.3.2008 kl. 18:08
Knús á þig Antonía mín. þetta er falleg færsla.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 21:23
Takk kærlega, og stórt knús á ykkur Tigercopper og Ásthildur Cesil **
G Antonia, 10.3.2008 kl. 21:51
Sammála þeim hér að ofan en þær eru misjafnar hjartasorgirnar og hvernig fólk tekur þeim. Þekki fólk sem er reitt vegna skyndilegs fráfalls nákomins ættingja mörgum árum seinna og gengur um með reiðigrettu. Finnst frekar að við eigum að þakka fyrir að hafa verið samferða þó það hafi ekki verið langferð þá hefur það vonandi verið góð ferð. kær kveðja og faðmlag
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 11.3.2008 kl. 09:12
Ég er hérna og fylgist með þér Guðbjörg Antonía það máttu bóka. Kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 11.3.2008 kl. 23:38
Takk fyrir kvitt og comment Hjördís mín, Bukollabaular og Þorkell vinur. Já, lífið er fullt af unaðslegri tónlist... maður þarf bara að hlusta eftir henni >3 knús á ykkur og farið varlega í lífsins ólgusjó...
G Antonia, 12.3.2008 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.