speki

Ég ákvað þegar ég hóf bloggskrif að skrifa jákvæð blogg Smile   (ekki það að ég sé neikvæð manneskja) þó ég eigi vissulega mínar stundir eins og flestir FootinMouth . En það hefur samt alltaf gefið mér fyllingu að skrifa um lífið, tilveruna og manninn og það sem gerir lífið þess virði að því sé lifað. 
Mér finnst við vera svo oft að bíða; bíða þess að nú fari líf okkar senn að hefjast fyrir alvöru Woundering. Þá meinum við, "hið ljúfa líf", þar sem við erum hamingjusöm og sátt við lífið og tilveruna. 
Það virðist samt alltaf vera einhver hindrun í veginum, eitthvað sem þarf að gera, ljúka við fyrst, áður en við getum farið að lifa lífinu. Ég hef sem betur fer áttað  mig á því að þessar hindranir eru jú; LÍF MITT. 
 
Sá vegur er ekki til sem á enda sinn í hlaði hamingjunnar. Því hamingjan er vegurinn.Heart
Munum því að láta okkur annt um öll augnablik lífsins. Fara vel með tímann og njóta hans og muna að tíminn bíður ekki eftir neinum  Wink
 
"Hvert barna þinna elskar þú mest af öllum þínum þrettán börnum?" spurði hjúkrunarkonan móður eina.
Móðirin; "Það sem er veikt þangað til því batnar og það sem er úti þangað til það kemur heim." Kissing 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Satt og rétt þetta. Takk fyrir mig. Knús og kveðja.

Vilborg Traustadóttir, 12.3.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Tiger

  Þetta var falleg, jákvæð og hugljúf færsla - þú ert greinilega á réttri leið í að blogga jákvætt sko!

Maður á auðvitað að hugsa og gera sem mest úr því sem maður hefur - hér og nú - en ekki sífellt vera að leita af einhverju betra. Því fyrr sem maður sættir sig við það sem er í hendi manns hverju sinni - því ánægðari verður maður með lífið. Knús í nóttina...

Tiger, 12.3.2008 kl. 03:26

3 Smámynd: Guðný Bjarna

Góð pæling hjá þér..... "lífið er núna" ...já... það sem við erum að fást við hverju sinni... það er bara spurning að kunna að njóta þess sem ER....

eigðu góðan dag mín kæra

Guðný Bjarna, 12.3.2008 kl. 09:16

4 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Ó já... en sætt!

Eins og maður geti gert upp á milli barnanna sinna... öll yndislegust eins og þau eru!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 12.3.2008 kl. 12:04

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær færsla takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2008 kl. 17:31

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl Guðbjörg. Skrifaði nokkuð góða færslu á þig í dag, sem komst aldrei inn á síðuna þína. Kannski voru það örlögin, en ég sagði þar ekkert ljótt svo sem. Ég er mjög ánægður með þig Guðbjörg mín og þannig vil ég hafa þig, ávallt að pæla í lífinu og tilverunni.  Nú fæ ég að heyra í þér nærri daglega, en áður aðeins á jólunum í gegn um jólakortin þín stórkostlegu.  Þannig að nú get ég fagnað oftar ,  að fá skrifin þín beint í æð.  Þetta var það helsta sem mér lá á hjarta eftir lestur á speki þinni.  Kær kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 12.3.2008 kl. 18:32

7 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Hef einmitt heillast af jákvæðu spekinni þinni Guðbjörg!Kveðja

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 12.3.2008 kl. 19:27

8 Smámynd: G Antonia

Takk hjartanlega fyrir falleg comment öll sem eitt.

Guðný mín, já ég elti þig hingað og er hæstánægð, takk*

Sigþóra, gaman að kynnast þér hér á blogginu og bið að heilsa "heim"

Ásthildur Cesil, við eigum vonandi eftir að halda áfram að kynnast og spjalla saman á blogginu, frábær bloggin þín ávallt og myndir.

Keli minn þú ert bara lang bestur * þínar pælingar eru hver annarri skemmtilegri og það er heiður fyrir mig að hafa kynnst svona frábærum manni sem þú ert. Bjóst nú aldrei við að þú værir svona mikill bloggari, en hef náttúrulega vitað að þú byggir yfir mikilli visku inside... knús fyrir falleg orð til mín *

Hjördís ofurkona og mamma; þú ert bara frábærust!

G Antonia, 13.3.2008 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband