:-)

Mikilvægara er að þekkja það sem er.....en að sjá fyrir það sem verður!!!!
fokkkk.. ég var búin að skrifa stóra bloggfærslu þegar netið datt út hjá mér og þar með bloggið Gasp
Meðan ég hlusta á ljúfa tóna leika við sálu mína, vafra ég um á netinu og undir það síðasta er ég farin að lesa svo margar bloggsíður... bloggsíður bloggvina minna, að ég er eiginlega orðin orðlaus sjálf, þó svo ég hugsi margar hugsanir sem hugsandi manneskja Whistling ..hugsanir verða að orðum, orð verða að gjörðum, gjörðir verða að venjum...og svo framvegis...En ég bara kemst ekki yfir það að koma þeim á "blað", enda miklu skemmtilegra að skoða myndir og lesa blogg ....
Bloggarar er þó mismunandi, hjá sumum skellir maður upp úr LoL öðrum tárast maður hjá Frown einhverjir eru bölvaðir röflarar, og síðan finnast hér  stórgáfaðir karakterar sem leyfa okkur að lesa um það hvernig við ættum að breyta öllum heiminum "ummm" ef það væri nú hægt !!! 
En mitt í þessu öllu finn ég þó hve hlýleg orð geta skipt sköpum í lífi annarra eins og ósögð orð geta  valdið hugarangri ....

Ennnnnnn þar sem við vökum til að sofna og sofum til að vakna í þessu lífi  FootinMouth .. er best að drífa sig í heita pottinn fyrir svefninn og finna djúpa ró í frjóum friði Halo  er ekki sagt að einveran rói mann mest ?
Brosum, því Guð elskar okkur, og höldum áfram að brosa og þá munu aðrir brosa með okkur SmileHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er alveg rétt sem þú segir Antonía mín hlýleiki og kærleiki eru afar þýðingarmikil okkar litla sálartetri.  Þetta er mjög flott færsla hjá þér, og satt sem þú segir, hugsun sem breytist í orð, orð sem breytast í gjörðir og gjörðir sem verða að venju.  Þetta er afskaplega viturlega mælt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2008 kl. 09:19

2 Smámynd: Guðný Bjarna

Skáldin okkar kunnu að setja bros og tilfinninga í bundið mál og gert ódauðlegar hendingar, .....þessi er dæmi um slíkt;

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Og svo segir Megas;

"ef þú smælar framan í heiminn þá mun heimurinn smæla framan í þig"

 Eigðu góðan dag mín kæra,

Guðný Bjarna, 19.3.2008 kl. 10:01

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Aðeins að heilsa upp á þig mín kæra. Er að vinna á morgunn, skírdag og er ekki í neinu bloggstuði eða þannig.  Heyrumst kannski á morgunn.  Kveðja .

Þorkell Sigurjónsson, 19.3.2008 kl. 23:19

4 Smámynd: G Antonia

Takk hjartanlega fyrir hlýleg orð og comment mínir kæru bloggvinir, Ásthildur Cesil, Bukollabaular, gbljósa og Keli vinur minn Sendi ykkur páskaknús - eigið gleðilega páska !

G Antonia, 20.3.2008 kl. 00:00

5 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæl Guðbjörg, var potturinn góður í nótt? Bið að heilsa strákunum þínum(líka Magna eldri). Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 20.3.2008 kl. 00:03

6 Smámynd: G Antonia

Sæll Helgi, bara í helgarfríi Jú, takk potturinn er það besta við húsið hér og sérstaklega finnst mér gaman og slakandi að fara í tunglbirtu og horfa á stjörnurnar ... Ég skila kveðjunni, takk fyrir það og við sendum sömuleiðis kveðjur til ykkar á Áshamarinn Gleðilega páska .

G Antonia, 20.3.2008 kl. 00:49

7 Smámynd: Tiger

  Ég er svo mikið sammála þér hérna. Það er svo ótrúlega gott að kíkja á þá sem dreyfa brosi og gleði frá sér, slíkt festist við mann og maður ber það áfram á aðra. Maður rekst of oft á fólk á netinu sem telur að það megi bara vaða á skítugum skónum yfir allt og alla með leiðindum, en það á auðvitað aldrei að líðast.

Betra er að senda frá sér litla bloggfærslu um gleði, jafnvel þó hún myndi ekki snerta nema kannski eina eða tvær manneskjur á góðan hátt - en að senda 10 færslur á neikvæðan hátt sem bara leiða illt af sér. Bara að fleiri væru nú svona fallega hugsandi eins og þú Antonia mín. Knús á þig í páskana.

Tiger, 20.3.2008 kl. 01:24

8 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Sammála Tigercopper og þeim hér að ofan. Við erum bara glöð  í dag. Allt á fullu í stofunni en Heiðar, Ásgeir og Bjartey gáfu Gogga 17 metra bílabraut með 6 lykkjum. Spurning hverjum þeir voru að gefa það var svo gaman hjá þeim í gærkvöldi. Langar svolítið mikið í heitan pott það er svo langur í langinn eins og einhver segir.Kv

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 20.3.2008 kl. 09:36

9 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

langur í mér langinn

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 20.3.2008 kl. 09:38

10 Smámynd: G Antonia

Takk sömuleiðis Tigercopper, þú ert einmitt einn af þessum sem mér finnst gaman að lesa blogg hjá, og oftast færð mig til að skellihlæja og ekki skemma myndirnar sem þú setur með knús á þig!

hehehe!! Hjördís mín, langur á þér langinn .... aldrei heyrt þennan áður, góður!!!!  Til hamingju með peyjann þinn í gær og gott að allir gátu LEIKIÐ sér páskaknús til ykkar á Heiðó

G Antonia, 20.3.2008 kl. 10:50

11 identicon

Sæl systir........

Til hamingju með "nýja bloggið" systir mín. 

Ég sé á hinu "blogginu" að þú ert að fara í sólina á morgun, svo góða ferð systir mín og vonandi að þú fáir gott veður.......

Annars er allt gott, ég farinn að vinna hálfan daginn og svo er stór dagur í dag því "prinsinn Þorkell Máni" er 1árs í dag.........

Annars aftur góða ferð og njóttu sólarinnar og GLEÐILEGA PÁSKA til ykkar í Keflavíkinni.

Þorkell bróðir

Þorkell bróðir (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 11:32

12 Smámynd: G Antonia

Takk fyrir það stóri bro Og til hamingju með nafnann þinn - orðinn 1.árs ég bara á ekki til orð, váá hvað tíminn líður  ... Gleðilega páska í Kópavoginn og Grafarvoginn páskaknús

G Antonia, 21.3.2008 kl. 20:10

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða skemmtun á Spáníá GAntonía mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband