Heim á ný
4.4.2008 | 01:37
Jæja þá er maður kominn þeim megin á vegasaltinu þar sem gleðin við að spretta á fætur og ganga glaður að verkefnum dagsins taka við.....eftir nautn þess að hafa tekið mér frí og gert EKKERT einhverja daga Og satt best að segja finn ég varla betri leið til að gleðjast en einmitt í göngutúr eftir sendinni strönd á fögrum sumarmorgni í glampandi sól og fuglasöngi.
En lífið er ferðalag.. og til þess að njóta þess verður maður að vera öðru hvoru að skreppa á hinn staðinn Já þetta var yndisleg ferð til Spánar þar sem hitinn fór ekki undir 20 gráðum enda er þetta staður sem hefur alltaf heillað mig... ( segir það ekki heilmargt um mann sjálfan) staðir sem heilla mann ??
En nú er ég kominn heim á ný, eftir 11 daga, þar sem ég lenti í fullt af ævintýrum ... þó þau væru ekki öll eintóm hamingja, þar sem sorgin knúði dyra einnig. .. Ég lenti í að bíllinn bilaði sem ég var á þegar ég kom út, þurfti að finna verkstæði og bæta úr því og eins og annað á Espanía, er ekki verið að flýta sér þar... hasta manjana heyrir maður oftast
... síminn virkaði ekki, og netið því ekki... og ekki er enn búið að finna út úr því - og síðasta og erfiðasta sem ég upplifði í þessu 11 daga fríi mínu var dauðsfall og jarðaför góðs nágranna (ensk kona) sem ég hef þekkt í ein 10 ár. Þetta var upplifun, allt öðruvísi en maður hafði upplifað áður að fara í jarðarför hjá enskri konu á Spáni ....en á erfiðum stundum reynir maður síðan að finna sína innri gleði með því að athuga hvað er utan dyranna sem maður stendur innan við/ eða þannig!!
.... Í þessari jarðarför (ólíkt því sem ég þekki hér heima þar sem við syrgjendur gefum hinni látnu blóm) snýst þetta við þarna þar sem við fáum með okkur fallega bleika rós (í þessu tilfelli) og ég get sagt ykkur að ég hugsaði til Janet (þeirrar sem dó) alla daga eftir jarðarförina þegar bleika rósin fór að blómstra fyrir framan mig. -
- gefum blóm á meðan augun sjá það, ekki þegar ég er kominn í kistuna og fæ ekki notið þeirra - einhvern veginn þannig hefur mitt mottó verið !!! Svo þessi hugmynd fannst mér alvega "brillíant"
En angurværðin sem getur fylgt þvi að vera fjarri ástvinum sínum um hríð eykur svo sannarlega gleði endurfundanna..... og nú er ég kominn heim og tek fagnandi á móti köldum frostkossum vetrarnæðingsins (miðað við Spánarblíðuna) á vangann....
Eigið góðan dag og komandi helgi ....
Athugasemdir
Æijá, það er alltaf yndislegt að geta brotið upp hið venjulega og skellt sér í hið óvenjulega. Jafnvel þó það séu ýmsar misskemmtilegar uppákomur - þá er það allavega eitthvað annað en þessi stanslausa 8 - 5 rútína hérna heima. Leitt með ensku vinkonuna þína.. en velkomin aftur í kuldakastið hérna heima. Knús á þig ljúfan.
Tiger, 4.4.2008 kl. 01:47
Satt segirðu Tigercooper takk fyrir comment og Húbbahúllahúbbahey..... maður tók nú nokkur sporin í strápilsi og ermalausum bol
.... já maður verður bara að muna að vera jákævður þar sem jákvæðar hugsanir birtast og hverfa líkt og tunglið þegar það er ofar skýjum... Og tunglið er á sýnum stað þótt það sé hulið dimmum skýjum... Knús á þig bloggvinur inn í helgina *
G Antonia, 4.4.2008 kl. 02:51
Samúðarkveðjur!
En lífið heldur áfram svo ég segi...
Góða helgi!
Sigþóra Guðmundsdóttir, 4.4.2008 kl. 14:50
Mikið er ég fegin að fá blogg frá þér búið að vanta það mikið. Vorum að koma inn hjónin vorum í smágöngu með Ylfu. Veðrið alveg yndislegt víða kveikt á friðar samúðarkertum svo fallegt. Góða nótt og knús
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 5.4.2008 kl. 00:26
Takk sömuleiðis Sigþóra
æi já hvað þetta er sorglegur dagur í Eyjum, ætla að geyma minningargreinarnar þar til í fyrramálið þegar ég verð ein í rólegheitum

Til hamingju með Ylfu Dísin mín, og takk fyrir falleg orð, góða nótt til þín og ykkar líka **
G Antonia, 5.4.2008 kl. 01:07
Velkomin heim...
Vilborg Traustadóttir, 5.4.2008 kl. 08:42
Heima er best. Vertu velkomin mín kæra. Kveðja
Þorkell Sigurjónsson, 5.4.2008 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.