Helgarlok
6.4.2008 | 13:17
Jæja, kominn sunnudagur og "söngur, hróp og ohahha" enska boltans úr sjónvarpinu hljómar hér um allt hús - Ég er nú frekar svona fótbolta"týpan" en ...... það er nú ekki sama hverjir eru að spila og ef á að hafa þetta á ...allan sólarhringinn alla daga, þá heyrir maður ekkert annað
en þennan söng....En hver er að kvarta, ekki ég !!!!
En það er fleira á dagskrá í helgarlok en fótbolti, því ég er jú að passa "ömmu-hundinn" minn Dimitar (sko skírður í höfuðið á Dimitar Berbatov þeim flotta fótboltamanni úr "mínu" liði, Tottenham) Eigandinn hans Dimitars er elsti sonur minn, sem er núna að keppa sjálfur í fótbolta í dag - Áfram ...!!!!!!!!
Síðan er það fermingarveizla núna klukkan 15.00 hjá systrasyni eiginmannsins, og þar verður jú stórfjölskyldan þeim megin og svignandi borð af tertum, þannig að munnurinn ætti að hafa nóg að gera, ef ekki tyggja þá tala *blabla*
Já, þúsund ástæður hamingju og gleði í dag eins og aðra daga og það eina sem slær köldum, björtum vordegi við, er....... að líða vel á köldum björtum vordegi
Og við erum svo heppin nú á dögum Internets að það er hægt að senda *sýndarfaðmlög* og *kossa* yfir landið/heiminn þvert og endilangt - hvenær sem þörf er á og ekki þörf.... og það veitir þá kannski einhverjum "samstundis" gleði og/eða ánægju , og ákvað ég því að enda þessa bloggfærslu mína - á að senda ykkur bloggvinum mínum og öðrum sem kíkja hér við eins og einn *koss* og *faðm* á þessum fallega sunnudegi í apríl.
Athugasemdir
Knús til baka á þig mín elskulega G.Antonía.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 15:09
..velkomin heim...gott að sjá þig aftur á blogginu
Guðný Bjarna, 6.4.2008 kl. 22:39
Tiger, 7.4.2008 kl. 01:04
Takk kærlega fyrir Ásthildur Cesil, Guðný mín og Tigercopper - bloggvinir mínir... Eigið góðan dag * knús frá mér
G Antonia, 7.4.2008 kl. 15:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.