*bros* inn í nóttina
11.4.2008 | 01:17
Eitthvað "busy" þetta kastið og ekki beint í bloggstuði. En engar fréttir eru jú betri en slæmar fréttir Dagurinn alltaf að lengjst, fallegt veður, logn og sól í allan dag í bland við hvíta jörð. Vinna, tiltekt og ræktin kláraði þennan dag og framundan "djamm"helgi með Roof Tops á Árgangsmóti váá hvað það verður gaman, að rifja upp gamlar og góðar minningar er jú alltaf kærkomið !! Roof Tops, hef ekki sagt þetta nafn í ein 30 ár að minnsta kosti
En nú ætla ég að skreppa í heita pottinn og hlusta á þögnina á meðan ég horfi á stjörnurnar og tunglið og finn mína innri ró. Síðan eru það draumaheimar.
Og þar næst gleðst ég yfir nýjum degi að morgni
Athugasemdir
Tiger, 11.4.2008 kl. 02:12
Góðan daginn Guðbjörg!Sendi þér bros inn í daginn!! Gaman að sjá nýtt frá þér er heldur ekki í bloggstuði. En skemmtu þér vel um helgina fór einmitt á skólaball með Roof Tops í Stapa gosárið. Kv.HIA
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 11.4.2008 kl. 09:51
hehe!! þú ætlar ekki að láta sólina vekja þig *nátthrafn*
Ég er sko sammála með næturbirtuna, ég get ekki sofið á björtum nóttum, en hef ekki þurft þess sl hva? 15 ár held ég, þar sem ég er utanlands þann tíma sem bjartar sumarnætur eru hér - En ef maður þarf ekki að sofa, æi þá getur verið svo sérstakt að vaka sumarnótt á Íslandi... en ég kýs myrkrið, amk á nóttunni og kvöldin og elska kertaljós .....
knús á þig*
Loksin heyrir maður í súpermömmunni elskan, hvernig gengur með nýjasta fjölskyldumeðliminn, ? Já, hehehe mannstu Roof Tops, ég gat ekki annað en brosað út i eitt, þegar ég heyrði hljómsveitina
... Hvað skildu þeir eiginlega vera orðnir gamlir hehehehehehehe!!!!! (ekki við!)
*bros* til þín og knús líka
G Antonia, 11.4.2008 kl. 14:35
ohhh ..árgangsmót....það er svo gaman að fara á svona fortíðarflipp
skemmtu þér vel
Guðný Bjarna, 12.4.2008 kl. 15:26
Hljómar vel þetta með heitapottin GAntonia mín. Vonandi hefurðu fundið þína innri ró einmitt þar í takt við stjörnuarna.
Knús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2008 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.