góða helgi

Ég er bara ekki að "geta" bloggað þessa dagana. Blush  Bara einhvern vegin orðlaus og andlaus þó ég sjái hækkandi sól og finni lyktina af sumrinu nálgast .

Sendi bloggvinum mínum og hinum sem lenda hér óskir um góða og heila helgi.
"Those who bring sunshine to the lives of others, can not hide it from themselves."
Helgarknús Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Eigðu yndislega helgi líka ljúfust og njóttu góða veðursins ...

Tiger, 19.4.2008 kl. 03:06

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl mín kæra vinkona. Ég hefi verið slappur við að koma við, en nú hefi ég brotið ísinn, allavega í bili. Aðeins er maður farinn að finna fyrir vorinu og ekki seinna vænna.  Hafðu það ávallt sem best Guðbjörg mín...Kveðja. 

Þorkell Sigurjónsson, 19.4.2008 kl. 04:54

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hafðu það gott GAntonía mín.  Og vonandi hrekst af þér slenið.  Það er líka gott að hvíla sig.  Knús á þig inn í daginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2008 kl. 12:18

4 Smámynd: Guðný Bjarna

helgarknús í Kefló

Guðný Bjarna, 19.4.2008 kl. 23:35

5 Smámynd: G Antonia

Sömuleiðis góða helgi til ykkar eða helgarrest !  Tigercopper ómissandi með flottu myndirnar, Keli minn knús á þig og gaman að sjá þig hér, Bukollabaular takk sömuleiðis, Ásthildur Cecil knús á þig og Guðný Bjarna Ljósa með meiru helgarknús á þig og takk fyrir comment öll sem eitt!!! 

G Antonia, 20.4.2008 kl. 01:42

6 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

gaman að heyra í þér G Antonia,

annars held ég að maður þurfi að vera rosalega sjálfmiðaður/uð til að blogga í gríð og erg. Ég er svona túramaður líka í blogginu, enda viðeigandi þar sem ég er núna að vinna á Staðarfelli í Dölum.

Fín síða hjá þér, takk.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 20.4.2008 kl. 02:00

7 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Ertu bara ekki með hugann við sólarströnd á Spáni.En alltaf gaman að sjá nýtt frá þér dúlla. Hef ekki kíkt í tölvuna síðan á föstudag búið að vera yfirdrifið að gera  hér enda er ég í hálfgerðum hægagangi. Er ekki einu sinni búin að horfa á sjónvarpið síðan ég horfði á Bubbaband. Hafðu það gott Knús Hian

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 20.4.2008 kl. 22:00

8 Smámynd: G Antonia

Takk fyrir innlitið Sveinbjörn, við "boltumst" í sumar

 HIA mín, ótrúlega rétt hjá þér, og nú er ég ekki bara með hugann þar heldur skrepp í nokkra daga - lúxus þessi tilboð sem hafa gengið yfir landann hjá ferðaskrifstofunum -  ég segi bara Gleðilegt sumar og góða helgi til þín Hjördís mín og hinna bloggvina minna ( rímar alltaf hjá mér) heheh!!!  knúsí

G Antonia, 23.4.2008 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband