home sweet home

Jæja þá er maður mættur á nýan leik á heimaslóðir í rigninguna - missti víst af "góða"veðrinu sl daga, en það hlýtur að koma aftur, og ekki er ég að kvarta yfir veðri, enda búin að vera í sól og sælu sl 10 daga Cool
Var þó svo óheppin er ég steig fram úr rúminu í morgun að löppin "gaf sig" eða eitthvað í þá veru og ég steinlá á gólfinu, steig einhvern veginn ekki í löppina heldur á ristina og nú er ég stokkbólgin og vafin í teygjusokk og bíð eftir röntgen á morgun Frown ó mæ god og ég sem hef bætt á mig nokkrum kílóum í sælunni þarna úti og ætlaði nú aldeilis að taka á því í ræktinni Whistling en hver veit..... kannski rætist úr þessu og þetta er bara smá-tognun og ég næ mér á viku eða svo? Þá hoppa ég í ræktina af gleði -- ef ekki.. þá verð ég bara að hætta að borða grænmetismatinn sem ég ét (þar sem ég er grænmetisæta) og reyni við ávexti Tounge æi þetta kemur í ljós!!!

Er allavega glöð að komast í tölvuna mína aftur og fara blogghringinn í rólegheitum,  nóg lesefni framundan, það er nefnilega þannig að sum ferðalög lífsins förum við innra með okkur og þau ferðalög taka engan enda.
Munum því elsku vinir, bloggvinir og aðrir ..að fólk sem lifir lífinu  með opnum huga færir bæði sjálfu sér og öðum gleði og hamingju.... Eigið góðan mánudag og vinnuviku framunda -Kissing 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Ég er svo glöð að þú ert komin aftur á rúntinn með fallegu og skemmtilegu kommentin þín og skemmtilegu skrifin vonandi eru þetta ekki alvarleg meiðsl sendi þér batakveðjur

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 5.5.2008 kl. 08:55

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Velkomin heim kæra bloggvinkona.

Guðjón H Finnbogason, 5.5.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: Tiger

Vertu velkominn heim ljúfan. Vonandi er þetta ekki alvarlegt með fótinn þinn. Það er að skjótast á okkur sumartími svo nú færðu bara vonandi gott veður hérna líka, þó aldrei verði það eins og úti. Knús á þig ljúfan og eigðu góða viku framundan.

Tiger, 5.5.2008 kl. 19:53

4 identicon

Hæ skvís og velkomin heim vona að þú lagist fljótt í fætinum kær kveðja héðan af okkar yndislegu eyju og kveðja til fjölskyldunnar þinnar ,knús  Harpa K

Harpa K (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 22:39

5 Smámynd: G Antonia

*faðm* og knús til ykkar allra og takk fyrir falleg orð og kveðjur

G Antonia, 6.5.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband