helgi framundan
8.5.2008 | 19:26
jæja maður þarf bara að setja á sig "sól"gleraugu "bjartsýninnar" svo gott er veðrið í dag- sé ekkert nema gott sumar framundan!! Hvað með ykkur ??? Og þegar veðrið er svona fallegt, finnst mér best að drífa mig út og muna að njóta. Gleyma ekki að lífið getur verið eins og RJÓMAÍSINN... þannig að maður verður að njóta hans áður en hann rennur niður
.... Verður maður ekki bara "léttur á fæti"- "kát sem kið" - og "frískur sem fiskur" á svona góðum degi' ?
Ég vildi ég kynni að setja inn myndir á mbl.is bloggið hér... mér er það hulin gáta hvernig það er gert? Ég get náð í myndir og sett í albúm en ekki komið þeim hér á bloggfærslu... (kannski er það bara eins gott! )
Nú fer enn ein helgin í gang, og núna er það Hvítasunnuhelgi.. mætum nú helginni eins og við ráðum yfir henni, þetta eru stundirnar okkar og við ráðum hvað við gerum við tímann..... grípum hann og elskum, hjálpum og sköpum... (en nú er þetta að verða komið nóg hjá mér)
Líðandi stund er ávallt það andartak sem mikilvægast er að hlúa að...
skjáumst
Athugasemdir
Já sjáumst Guðbjörg mín, eða þannig. Kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 8.5.2008 kl. 21:24
..fikta, fikta ... það gerði ég og tókst að koma myndum inn...
góða helgi mín kæra
Guðný Bjarna, 8.5.2008 kl. 23:51
Tiger, 9.5.2008 kl. 03:43
Jamm það er komin helgi enn og aftur, tíminn líður ótrúlega hratt. Þetta með myndirnar er skrýtið. Þú ferð í litla kassann þar sem stendur myndir fyrir ofan færslurammann er það ekki ? þá kemur upp Browse, og þegar þú ýtir á það, koma upp myndirnar sem þú áttí tölvunni. Og svo geturðu valið stærðina, ég hef mínar í 500 áður en ég set þær inn og vel svo upphafleg stærð. Prófaðu bara, þetta kemur. Knús á þig inn í daginn G Antonía mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2008 kl. 13:03
Þú ættir nú að fara létt með að setja inn myndir Guðbjörg ekkert flókið fyrst ég get það tölvuaulinn! Hér er fjölskyldu og afmælis-helgi framundan!
Knús
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 9.5.2008 kl. 14:12
Takk elskurnar fyrir comment hér - hún var fljót að hverfa blessuð sólin
og síðan ég skrifaði hér hefur næstum rignt stanslaust (en það er gott fyrir gróðurinn, er það ekki ??)
sendi ykkur hlýjar rigningarkveðjur inn í helgina og knús* ps.. mér skal takast þetta með að koma myndunum inn hér
að lokum... Takk fyrir hjálpina **
G Antonia, 9.5.2008 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.