mömmudagur og lokadagur "í den"

í dag er MÆÐRADAGURINN, tileinkaður öllum mæðrum....Þó ég sé ekki mjög meðmælt öllum þessum dögum, þá meina ég; reyklausa deginum, bónda- konu- valentínusar - og öllum hinum... þá finnst mér samt þessi dagur eiga rétt á sér!!! InLove
Mér finnst eigi að virkja þennan dag meira og auglýsa, þannig að þennan dag gætu allar mömmur fengið frí.... börnin yrðu extra góð þennan dag!!  Og ef það er kennt frá unga aldri læra börn sem fyrir þeim er haft *ikke?*  Heart 
Ég á 3 börn og ekkertf af börnunum mínum man þennan dag né hefur nokkurn tíma gert (eða allavega ekki sýnt  þeir muni hann).... þessi dagur er í mínum augum/huga nákvæmlega eins og aðrir dagar Pinch  Nema hvað; ????getur verið að ég rugli Errm ...snýst þetta kannski við; er þessi dagur kannski til að minna okkur á að við erum MÖMMUR....????!!!! Undecided Eigum við kannski að "stjana" svona "einu sinni" við ungana okkar GetLost þennan dag og td; vekja þau með kossi.... finna morgunverðinn.... leikfimitöskuna.... keyra þeim í skólann/íþróttahúsið/til vinarins...sækja þau svo þegar þau hringja... finna hádegismatinn..... ganga frá matnum... taka úr íþróttatöskunni og Þvo fötin sem þar liggja blaut... segja þeim hvað þau séu sæt, biðja þau fallega að fara nú að læra...elda kvöldmatinn... vaska upp.... kyssa þau svo góða nótt, þessar elskur og setjast svo niður og hugsa hve heppin við séum að eiga svona falleg og góð börn!!!!!!!!!  Eða eitthvað þessu líkt !... Blush Er kannski MÆÐRADAGURINN á hverjum degi InLove EÐA HVAÐ!!!   !!Crying 

Ég ætla að setja hér inn eins og eitt gullkorn til elsku sona minna þennan mæðradag; InLove
Elsku synir mínir þrír, þakka ykkur fyrir að vera til... að þvælast fyrir mér, valda mér andvökunóttum, kosta mig ómælt fé og raska áætlunum mínum... Hvað í ósköpunum hefði ég gert án ykkar? LoL
Ég veit ég ..má ekki láta mig dreyma draumana ykkar,
heldur gefa ykkur tækifæri til að dreyma ykkar eigin drauma -
og gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að hjálpa ykkur að láta þá rætast!!!
Þið eruð yndislegir og fegrið líf mitt - litlir sem stórir!! Ég ann ykkur og elska ykkur meira en allt... í dag og - allt til æviloka!! InLove

mömmudagsknús til allra **


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Ég fékk mína fyrstu mæðradagsgjöf  í dag! Frá Maríu Sif ekki laust við að tár laumuðust út. Gjöfin var tré með sjó römmum fyrir myndir! Það er yndislegt að fá að vera  mamma sjö barna og enn betra að vera amma! Kveðja og knús suður með sjó!

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 11.5.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: G Antonia

Sætt, já það á að kenna kálfunum á þennan dag .... aldrei of seint!!  og líka við sem erum fullorðin og þeir sem eru svo heppin að eiga mömmu á lífi enn... að knúsa hana extra þennan dag.. ikke*?

Sko, held bara stelpur séu "næmari" þær verða nefnilega mömmur (og eru orðnar eins og María Sif) líka.... þetta er sæt gjöf, ég á svona líka .....já þú átt mörg börn og hefur líka extra stórt hjarta, trúi ég ** ..... ég á ömmuhlutverkið eftir - hlakka til!!!  knús heim

G Antonia, 11.5.2008 kl. 21:56

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flottur pistill G.Antonía mín.  Yngsti sonur minn kom til mín með gjöf og svo fallegt kort.  Það var yndislegt að fá.  En það er gott að þessi dagur er til, hann vekur athygli á móðurinni, ekki vanþörf á, því hún vill svo oft gleymast þessi elska, því mamma er jú oftast bara í bakmyndinni, þar sem allir leita til þegar allt er komið í stopp.  En svo auðvelt að gleyma, þegar vel gengur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2008 kl. 10:30

4 Smámynd: G Antonia

Takk, já þetta er alveg rétt hjá þér Ásthildur Cesil, því móðirin er jú svo stórt "hlutverk" í lífsins leik. Kærar kveðjur til þín og þinna stórfjölskyldu *

G Antonia, 12.5.2008 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband