góða helgi!
16.5.2008 | 10:39
Lífið er draumur .... láttu hann rætast
Nákvæmlega það sem ég ætla að gera og hef gert..... þannig að ég dreymi draum í líkingu við myndina að ofan og flýg á morgun út í sólina á nýjan leik flökkutík, æ knów!!!!!!!!!!!!
Lífið er söngur..... syngdu hann
Á Spáni get ég skemmt mér fyrir lítíð fé... á Spáni kostar sjússinn ekki neitt,
grísaveisla, dexitrín og diskótek
sólolía, bikiní og bús.
Á Spáááááni, á Spáááááááni
Lífið er leikur og við verðum að muna það að gleyma ekki barninu í okkur og "leika okkur" soldið
Veit ekki hvað ég verð lengi í þetta skiptið en hoppa bara í tilboðin - og læt þau EKKI framhjá mér fara ohhh nei! Í þetta skiptið kemur yngsti prinsinn minn með mér,(aðrir verða að vinna í fjölskyldunni, það verður jú einhver að vinna fyrir þessum "tilboðum" sem ég get ekki hafnað ) En yngsti sonurinn, hann þekkir sig jú þarna eða ætti maður að segja þekkir ekkert annað en "þarna" öll sumur síðan hann fæddist.. og þarna á hann sína góðu vini .. af ensku og spænsku bergi brotinn.
Hafiði heyrt um bókina; -munkurinn sem seldi sportbílinn sinn- ? Hef nú ekki lesið hana en veit þetta er svona bók sem ég hef unum af að lesa... svona um venjulegan mann sem lifði í alsnægtum og rugli og varð munkur ... svona Cat Stevens dæmi.. hefði getað verið ég!!!! Svona "þankagangur" heillar mig!!!!
Eins og Spánn og góða veðrið og sólin, stjörnurnar og mest og síðast heilla synir mínir og fjölskylda mig og er ég stoltust af þeim :D Hið sanna mikilvægi sálarinnar kemur best í ljós í daglegum samskiptum okkar við aðra...
Ekkert á að vera sjálfsagt - og munum það; að hvaða ávöxt líf okkar ber, veltur algerlega á því hvernig við lifum hvern dag.
Hvernig við verjum sérhverju dýrmætu andartaki lífsins sýnir okkar sanna innri mann - því enginn BLEKKIR neinn nema sjálfan sig...:$ Hlustum á tónana sem óma í hjarta okkar "essgurnar" mínar,
knús að sinni og góða og heila helgi**
Athugasemdir
Þú ert nú meiri kerlingin ertu af sígaunaættum?
Las einmitt munkinn á einni af ströndum Krítar undir sólhlíf ekki leiðinlegt væri alveg til í að vera þar svosem .
Góða ferð!
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 16.5.2008 kl. 12:06
Takk, ég fæ mér nú netið þarna úti núna, þó það taki nokkra daga, án þess get ég ekki verið.... knús í þokuna heim *
G Antonia, 16.5.2008 kl. 13:01
Tiger, 16.5.2008 kl. 20:47
Knús á þig inn í helgina G.Antonía mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2008 kl. 09:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.