internet komið í hús

Kannski það sé rétt hjá honum Kela samstarfs-vini mínum hér í síðasta commenti að ég væri ekki venjulega manneskja eins og þau hin......?? Ég er engill Halo Keli minn ef þú lest þetta Tounge Ég held Keli hafi skrifað þetta  af því ég þvælist mikið í sumarbústaðinn minn sl mánuði (sem vill svo til að hann er á Spáni) svo ég haldi áfram að afsaka mig, þá kostar farið frá 9.900 kr önnur leið og upp í 14.900 (það er að vísu hægt að fá dýrari ferðir, en ég fylgist með) ...  Ég hugsa það, að ef ég ætti sumarbústað á Akureyri væri dýrara fyrir mig að þvælast þangað... eða bara þó hann væri nær. .... Það er svo andsk...... dýrt bensín þarna (tala ekki um ef ég flygi til Akureyrar) og síðan þarf að halda sér uppi í sumarbústaðnum með grillmat og skemmtu ( til að mynda vídeóspólum t) þar sem það væri ekki net þarna og alltaf rigning) heheh!!!!  Nei aðvita myndum við spila bara...... Allavega er ég með þessu að sýna að það þarf ekki að vera dýrt að fara í sumarbústaðinn minn, þó hann sé á Spáni. Sérstaklega þar sem maður þekkir þetta allt.....ÞANNIG AÐ EFTIR ALLT, er ég bara venjuleg manneskja í fríi, þar sem það er stopp hjá okkur á sjó. 

En.......  var að fá netið inn, fyrir hálftíma og fór beint inn úr sólinni til að setja nokkrar línur á bloggð mitt, ohh nú verður munur að geta heyrt fréttir, lesið fréttir og fréttatengt, og ykkur öll blogg vinir mínir, þó ég sé hér á Spáni. Og sonurinn kemst á msn og myspace. Smile
Ég hlakka til að byrja að lesa .... en best að koma sér í sólina aftur núna......
Elsurnar mínar sendi ykkur sólargeisla yfir hafið og heim í hús......og stóran knús!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ elsku Guðbjörg mín

Hafðu það rosalega gott úti í sólini. Það byðja allir að heilsa af heiðó 47.

Kv Anna Sigga

Anna Sigga (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 11:47

2 Smámynd: G Antonia

Takk Búkollabaular mín, **

Takk elsku frænkz, sendi sólarknús á Heiðó og Brimó, takk fyrir að commenta elskan, **

G Antonia, 20.5.2008 kl. 17:28

3 Smámynd: G Antonia

Getur einhver sagt mér hvað er að ske hjá Dísinni minni? Með hennar síðu????????????? 

G Antonia, 20.5.2008 kl. 17:29

4 Smámynd: Tiger

   Hey sko .. til lukku með nýja netið mín kæra. Endilega leyfðu okkur að heyra af þér í sólinni af og til. Knús á þig og eigðu ljúfan tíma í hita og sól.

Tiger, 20.5.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband