23 mai
22.5.2008 | 23:30
Ég er ekki Eurovision- kona, en er þó ánægð að við skyldum komast í aðalkeppnina og horfi allavega á keppnina með "öðru" héðan frá Spáni á laugardaginn
Ég var hins vegar Idol- kona, en missti af síðustu Idol þáttunum, en held ég sé bara sátt með úrslitin, miðað við þegar ég horfði á Idolið síðast.
Við feðgin lékum okkur í dag í Alicante bæ, við búðaráp og "chill". Yndislegt veður hér í dag, hlýrra en sl daga eða alveg um 25 gráðurnar og sól... sól og sæla !
23 mai 1994 fyrir 14 árum var þessi dagur sorgardagur í mínu lífi. Þennan dag dó pabbi minn þá rúmlega 64 ára. Hann fékk krabbamein 3 árum áður eða í byrjun 1991. Þá var ég ófrísk af yngsta syni mínum, sem hann þó náði að kynnast aðeins. Pabbi minn var mér mjög mikils virði, enda með eindæmum góður, þægilegur og skemmtilegur maður og með frábæran húmor (minn húmor) hehehe!!!
Enn í dag og alla daga sakna ég pabba míns og ég ætla að heiðra minningu hans þennan dag þar sem ég kemst ekki að leiðinu hans með því að rifja upp yndislegan tíma sem ég átti með honum í æsku og allt þar til hann dó... tala um hann í dag og kveikja á kerti honum til heiðurs. +
Bræður mínir, Þorkell og Sigurjón eru að fara um helgina og gera leiðið hjá foreldrum okkar fínt, laga það og "shæna". Það gleður mig óumræðanlega mikið, og synd að komast ekki með þeim. En ég verð með þeim í huganum og sendi þeim gott veður ..
Set hér inn fallegt gullkorn í lokin á þessum degi;
Að elska ... er að taka þá áhættu að hljóta ekki ást á móti.
Að vona...er að hætta á að verða fyrir vonbrigðum
En menn verða að taka áhættu, því mesta hættan í lífinu er sú að hætta engu.
Sá sem engu hættir; gerir ekkert,... sér ekkert,... á ekkert,...og er ekkert.
Hann/hún getur ekki lært - fundið til - breyst - vaxið - elskað - né lifað
Sendi ykkur "spánskan" koss úr sólinni og munið að lifa lífinu lifandi.!
Athugasemdir
Knús til þín Elskuleg hafðu það ljúft í sólinni á spáni

Brynja skordal, 23.5.2008 kl. 00:57
Tiger, 25.5.2008 kl. 02:10
Virkaði með veðrið yndislegt veður í gær Bræður þínir hafa haft að klára vorlagfæringuna hjá mömmu þinni og pabba
Nýjasta heimilistækið vel nýtt í gær(heitur pottur)
Regína og Friðrik voru BEST engin vafi á því.
ÉG vaknaði við sólarupprás ekki við Ylfu heldur af áhyggjum af pabba sem datt í gærkvöldi úr nokkurra metra hæð og mjaðmagrindarbrotnaði og er á sjúkrhúsinu. Og af mömmu hún er ein heima vildi það endilega.
Bjart og fallegt veður á Eyjunni fögru.
Knús til þín
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 25.5.2008 kl. 06:38
Takk Brynja og Búkollabaular mín, knús tilbaka again and again!!!
Verð nú að viðurkenna Tigercopper minn að það er engin sól í dag, smá rigning bara .... já við eigum alltaf minningarnar og þær tekur enginn frá okkur..stórt faðmlag og knús til þín skemmtilegi í sólina heima núna.*
Hehe ja Hjördís mín, virkaði aldeilis með veðrið skilst mér, sendi það allt heim þessa helgi og við erum bara hér í þungskýjuðu og smá rigningardropum á meðan ( allt í lagi)
Bræður mínir dolfallnir muna ekki svona gott veður á Eyjunni fögru, (það er líka svo langt síðan þeir fóru, ég man góðu veðrin líka ) En yndislegt að þeir fengu svona veður og gátu lagað og gert fínt.
hehe!!!
Omg ertu kominn með heitan pott, til hamingju, nú er að nota hann og finna slökunina fyrir nóttina og hlusta á stjörnurnar - ég elska það.
Æi, leitt að heyra þetta með pabba þinn, uff mjaðmagrindarbrotnaði það er nokkuð en kannski gott að ekki fór verr , bið Guð að honum batni vel, og mamma þín er nú svo heppin að eiga þig að - þig munar nú ekki um að bæta henni í hópinn þinn stóra Hjördís mín súper hjartgóða...
Leyfi ykkur að hafa veðrið eitthvað áfram
Jú, við klöppuðum mikið fyir okkar fólki í Eurovision, ...
knús og klem **
G Antonia, 25.5.2008 kl. 11:38
sendi blogg-systraknús suður í sólina....
hafðu það gott ljúfan
Guðný Bjarna, 25.5.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.