raindrops falling on my head!!!

Jájájá, svona lítur út hjá okkur í dag, laugardag ... Ekki alltaf sól á Spáni þó það sé alltaf SÆLA Cool
Nú skipti ég um sambýling í dag, þar sem yngsti minn fer heim og miðsonurinn kemur með þeirri flugvél sem yngsti fer með heim Heart ... En ég vona nú að rigningin verði ekki viðloðandi, þó mér sýnist á spánni sem ég horfi á, að það sé eitthvað tvísýnt !!!  Bara að það verði ekki JARÐHRÆRINGAR!!!!!! þá er ég sátt. Whistling

Ég er jú ein af þessu fólki sem upplifðu eldgos (2svar) Surtsey þar sem myndaðist heilt fjall í sjónum og eldum og brennisteinsvikri rigndi eins og rigning um alla Eyjuna sem ég bjó á.... síðan eldgosið í jan 1973. ... Ég segi það satt, að við hverja flugvél sem fór í loftið hjá Hernum, er ég flutti síðan til Keflavíkur fékk ég "sting"FootinMouth...... og sé það nú að við sem upplifðum þetta eldgos fengum ekki nærri nóga áfallahjálp eða þannig andlega hjálp. Er svo jarðskjálftinn 17 júní 2000 reið yfir.... þá brást tappinn sem hafði verið hálf laus þarna inni í mér, því ég gjörsamlega sturlaðist!!!!!  Crying Ég hljóp hálfklædd (hafði nefnilega klætt mig úr skóm og yfirhöfnum) til að ná nógum hraða AWAY!!!! undan fjallinu í Dalnum þar sem ég var stödd....með mér var yngsti sonur minn þá á 9unda ári og Guð... hann flaug í lausu lofti greyið þar sem ég hélt í hendina á honum og HLJÓÓÓP!!!!  Þarna ákvað ég að vera ekki oftar á heimaslóðum 17 júní og hef staðið við þaðBlush .
Ekki það ég sé svo vitlaus að ég haldi það komi aftur þann 17 júní, neiii ég vil bara ekki minnast þessa á nýjan leik.... En nú skeði það sama heima Crying og þakka ég Guði fyrir að hafa ekki verið þar nálægt *sjokkkk*

Lítil saga, þar sem er rigning héðan frá mínum "sælureit" og ekkert við að vera ... er bara í stuði í tölvunni og hlusta á rigninguna lemja á gluggunum... ; er ég ligg í makindum eitt árið hér í sólstólnum við sundlaugina að lesa góða bók...  þegar mér finnst allt í einu eins og jörðin hristist, eða svimaði mig kannski????? Ég horfi skelfd á nágranna mína Shocking, englendinga og spánverja sem brosa sínu blíðasta Smile og ég spyr: What!!! funduð þið þetta ekki???  GetLost´Jú, jú Antonia mín þetta var BARA jarðskjálfti!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég pakkaði saman, hljóp hálf vælandi inn og hringdi heim; ÞAÐ ER LÍKA JARÐSKJÁLFTI HÉR!!!!Frown
Fór að kynna mér þetta betur og kom þá í ljós að bærinn hér hvarf sjónum í stórum jarðskjálfta í kringum 1900 ártalið Devil ... OHH nú voru góð ráð dýr!!!!!!  En þó þetta sitji innst inni... og þess vegna sé ég svona *rugl* kannski Whistling þá hefur þetta ekki skeð síðan þennan dag og vonandi aldrei again!!!! En þetta er til staðar hér víst !!!!!!!!!!!!!! Og útlendingarnir bara hlógu að mér!

Nokkru seinna er ég stödd nálægt uppáhaldsstaðnum mínum og ætlaðu að fara að borða þar, en hætti við af því ég þurfti að mæta annarsstaðar, þegar Baskarnir ákváðu að sprengja hann í tætlur..... þá urðu útlendingarnir hér hræddir, en ég !!!!  Nei , þetta er eitthvað framandi og ég geri mér ekki grein fyrir þessari hræðslu ......... Sem segir mér að ég er *klikk* hehe!!! Og bíð þess ekki bætur að hafa upplifað og lent í eldgosi á unglingsárum ..... eða hvað?

Þetta er kannski of langt blogg, þar sem rignir og ég kemst ekki undir sólhlífina mína í slökun ... þannig ég sit hér í staðinn, þar til ég fer á flugvöllinn um kvöldmat og skipti á syni hehe!!!

Sendi blautar og heitar sælukveðjur heim með von um engar fleiri jarðhræringar né þannig fyrirbrigði ... knús úr rigningarkrús *Kissing

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Gleðilega sjómannadagshelgi sjómannskona.

Ég var akkúrat eins og þú vaknaði um miðjar nætur við herþoturnar á vellinum  má aldrei heyra þungar drunur þá er ég ómöguleg þangað til ég veit hvað er að gerast. Jarðskjálftinn á 17. júni er í fersku minni líka var áleiðinni inní Dal heyrði öskrin í þér og fleirum hingað heim á tröppur óhugnanlegt Ég var líka uppi á landi þegar Hekla byrjaði að gjósa "71 með ömmu Jönu þá fórum við í Selsund en Svala heitin í Selsundi var vinkona ömmu eða er skyld ekki viss þá sá ég rennandi hraun og hirti heitan hraunmola svo var ég aftur þegar Hekla byrjaði að gjósa á ágúst 80 eða 81 svo hef ég upplifað Krísuvíkurskjálfta og verið í Þykkvabæ í skjálfta það var öðruvísi enginn hristingur bara mjúk bylgja enda bara sandur undir sveitinni þar djúpt á berg. Þá rúllaði mamma  fram úr rúminu það fannst okkur öllum fyndið systkinunum

Vonandi fer að stytta upp hér skín sólin en smá vindur

Farinn í vinnu bæbæ

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 31.5.2008 kl. 14:06

2 Smámynd: G Antonia

Takk elsku Hjördís, mér skilst það hafi nú minnkað eitthvað hátíðarhöldin þennan dag amk á Suðurnesjum - og er það miður! En þessi dagur er okkar dagur finnst mér, er ekki Verslunarmannahelgin þín soldið ... hehe!!

oh já við erum eitthvað "skemmdar" held ég, eitthvað af þessu fólki sem upplifði Eyjagosið ... ég finn mjög mikið til með fólkinu á Suðurlandi, og vona bara að þetta sé nú yfirstaðið næstu 8 árin amk.. Eiginmaðurinn minn var held ég að upplifa jarðskjálfta í fyrsta sinn, hann hefur alltaf verið á sjó .... og þetta var bara svona mjúk bylgja þarna á Suðurnesjum svo hann veit ekkert hvað þetta er enn..*heppinn* en nóg annað okkar sé *skrýtið* hehe!!!

Takk fyrir skemmtileg comment og skrif alltaf Hjördís mín knús á þig*

G Antonia, 1.6.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband