sæl !!
18.6.2008 | 01:10
Ákvað að setja inn nokkrar línur rétt fyrir svefninn.
Nýkominn úr heita pottinum, þar sem ég lét líða úr mér þreytuna og hlustaði á hljómsveitina "síðan skein sól" og Magna syngja úr skrúðgarðinum okkar hér í Reykjanesbæ... já það hljómaði alla leið heim til mín... LÍFIÐ ER YNDISLEGT, SJÁÐU ÞAÐ ER RÉTT AÐ BYRJA HÉR, LÍFIÐ ER YNDISLEGT MEÐ ÞÉR...lalalal!!! TRAUSTUR VINUR GETUR GERT KRAFTAVERK lalala... og fleiri perlur ómuðu í eyra mér í pottinum - Bara sæla, já sól og sæla!!!
Ég elska pottinn minn, þar næ ég að sleppa þreytunni og finna nýtt upphaf og kem oftast endurnærð upp úr. Maður þarf nefnilega ekki að streða til að vera hamingjusamur
. Bara halla sér aftur á bak í pottinum og láta hamingjuna koma með hvíldinni
Finnst þó ívið skemmtilegra að sjá og hlusta á stjörnurnar og horfa á tunglið á haustin þegar ég sit í pottinum, en finnst líka þessi birta sem við búum við og sjá sólina á bak við skýjin (virðist allavega vera þannig) um miðja nótt dálítið undur og stórmerki
.
Ég er sæl af því núna er rétti tíminn til að vera það... Sendi bloggvinum og öðrum hlýjar kveðjur og munum að sælir eru þeir sem hafa það viðhorf að það sé nóg pláss undir sólinni fyrir okkur öll
knús **
Athugasemdir
Æi, það er yndislegt að hafa góðan pott til að leggjast í og ná úr sér þreytu dagsins - eða bara til að slaka á og njóta þess að vera til. Knús á þig ljúfan og eigðu góða nótt.
Tiger, 18.6.2008 kl. 01:23
Grýla tók óþekku börnin í pottinn sinn

.. hehehehe!!!!
G Antonia, 18.6.2008 kl. 01:29
Knús á þig elskuleg mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2008 kl. 01:30
Knús í pottinn!!!
Vilborg Traustadóttir, 19.6.2008 kl. 21:39
hæhæ, hva þú komin heim og ég á leið til alicante ámorgun í heila 2 og hálfan dag, fer á morgun ogheim á mánudagskvöldið.... bara rétt að skjótast og skoða svæðið og njóta sólarinnar!!!!!! bara ljúft;) ertu kannski farin út aftur eða?
Palli (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 19:33
'Eg hélt þú værir bara enn í pottinum nú hugsa ég alltaf til þín þegar ég fer í pottinn hafðu það gott á Spáni dúlla!!
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 25.6.2008 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.