Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að. Ég ákveð því að velja að vandamálin fá vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti. Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt kex smyr með osti í blöðin svo ég lít. Að endingu ég segi við þig sem þetta lest þetta er góður dagur, hafðu það sem best ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.**
|
|
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:40 | Facebook
«
Síðasta færsla
|
Næsta færsla
»
Athugasemdir
Fallegt ***
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 10.10.2008 kl. 14:46
Guðný Bjarna, 10.10.2008 kl. 19:19
Takk G.Antonía mín, þetta er yndislegt ljóð. Takk fyrir þetta.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2008 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.