:-)
13.10.2008 | 20:01
KNÚSVIKAN MIKLA
Þegar staðan á íslandinu okkar er eins og hún er er afar mikilvægt að við stöndum öll saman, sýnum nærgætni, og látum ekki svartsýni og pirring ná tökum á okkur. Það þurfa allir að hugsa vel um sig, gæta þess að fá nægan svefn og velta sér ekki of mikið uppúr fréttum hvers dags (Gott að skammta sér ákveðið magn á dag) En það er ekki síður mikilvægara að við hugum að öðrum og séum vakandi yfir vinum, kunningjum, ættingjum okkar og samferðafólki, við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta og vera til staðar. Að mínu mati er eitt það mikilvægasta sem við getum gert er að knúsast, gott faðmlag er það sem að allir þurfa á að halda og sanniði til að þeir sem fá nóg af knúsi eru ríkir og eru tilbúnari fyrir lífið og verkefni dagsins. |
Athugasemdir
Ég var einmitt að knúsa köttinn. Knúsa kannski kallinn á eftir!;-) KNÚS í allar áttir.
Vilborg Traustadóttir, 14.10.2008 kl. 23:19
Ég er búin að vera að knúsa Ásthildi, Hönnu Sól og Úlfinn í kvöld og meira að segja afann Og nú segi ég knús á þig elskuleg mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2008 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.