Færsluflokkur: Bloggar

23 mai

Ég er ekki Eurovision- kona, en er þó ánægð að við skyldum komast í aðalkeppnina og horfi allavega á keppnina með "öðru" héðan frá Spáni á laugardaginn Tounge
Ég var hins vegar Idol- kona, en missti af síðustu Idol þáttunum, en held ég sé bara sátt með úrslitin, miðað við þegar ég horfði á Idolið síðast. Woundering
Við feðgin lékum okkur í dag í Alicante bæ, við búðaráp og "chill".  Yndislegt veður hér í dag, hlýrra en sl daga eða alveg um 25 gráðurnar og sól...Cool sól og sæla !

23 mai 1994 fyrir 14 árum var þessi dagur sorgardagur í mínu lífi.Crying Þennan dag dó pabbi minn þá rúmlega 64 ára. Hann fékk krabbamein 3 árum áður eða í byrjun 1991. Þá var ég ófrísk af yngsta syni mínum, sem hann þó náði að kynnast aðeins. Pabbi minn var mér mjög mikils virði, enda með eindæmum góður, þægilegur og skemmtilegur maður og með frábæran húmor (minn húmor) hehehe!!! Heart Enn í dag og alla daga sakna ég pabba míns og ég ætla að heiðra minningu hans þennan dag þar sem ég kemst ekki að leiðinu hans með því að rifja upp yndislegan tíma sem ég átti með honum í æsku og allt þar til hann dó... tala um hann  í dag og kveikja á kerti honum til heiðurs. + InLove
Bræður mínir, Þorkell og Sigurjón eru að fara um helgina og gera leiðið hjá foreldrum okkar fínt, laga það og "shæna". Það gleður mig óumræðanlega mikið, og synd að komast ekki með þeim.  En ég verð með þeim í huganum og sendi þeim gott veður InLove ..

Set hér inn fallegt gullkorn í lokin á þessum degi;
Að elska ... er að taka þá áhættu að hljóta ekki ást á móti.
Að vona...er að hætta á að verða fyrir vonbrigðum
En menn verða að taka áhættu, því mesta hættan í lífinu er sú að hætta engu.
Sá sem engu hættir; gerir ekkert,... sér ekkert,... á ekkert,...og er ekkert.
Hann/hún getur ekki lært - fundið til - breyst - vaxið - elskað - né lifað Smile
Sendi ykkur "spánskan" koss úr sólinni Kissing og munið að lifa lífinu lifandi.!


sól sól skín á mig

Tók þessa mynd á þessu augnabliki , en hvað tæknin er orðin ........ (á ekki orð yfir það) - vildi bara senda ykkur sumarkveðju héðan frá Espania Cool
Hér er bara sama sóló-blíða og allir glaðir.! Ekki annað hægt -
Get vel ímyndað mér hvernig er "heima hjá mér" núna, þegar Manchester United voru rétt í þessu að innsigla sigurinn. Wink

En aftur og áfram, sólarknús og hlýjar kveðjur til ykkar, farið varlega allir sem einn. **


internet komið í hús

Kannski það sé rétt hjá honum Kela samstarfs-vini mínum hér í síðasta commenti að ég væri ekki venjulega manneskja eins og þau hin......?? Ég er engill Halo Keli minn ef þú lest þetta Tounge Ég held Keli hafi skrifað þetta  af því ég þvælist mikið í sumarbústaðinn minn sl mánuði (sem vill svo til að hann er á Spáni) svo ég haldi áfram að afsaka mig, þá kostar farið frá 9.900 kr önnur leið og upp í 14.900 (það er að vísu hægt að fá dýrari ferðir, en ég fylgist með) ...  Ég hugsa það, að ef ég ætti sumarbústað á Akureyri væri dýrara fyrir mig að þvælast þangað... eða bara þó hann væri nær. .... Það er svo andsk...... dýrt bensín þarna (tala ekki um ef ég flygi til Akureyrar) og síðan þarf að halda sér uppi í sumarbústaðnum með grillmat og skemmtu ( til að mynda vídeóspólum t) þar sem það væri ekki net þarna og alltaf rigning) heheh!!!!  Nei aðvita myndum við spila bara...... Allavega er ég með þessu að sýna að það þarf ekki að vera dýrt að fara í sumarbústaðinn minn, þó hann sé á Spáni. Sérstaklega þar sem maður þekkir þetta allt.....ÞANNIG AÐ EFTIR ALLT, er ég bara venjuleg manneskja í fríi, þar sem það er stopp hjá okkur á sjó. 

En.......  var að fá netið inn, fyrir hálftíma og fór beint inn úr sólinni til að setja nokkrar línur á bloggð mitt, ohh nú verður munur að geta heyrt fréttir, lesið fréttir og fréttatengt, og ykkur öll blogg vinir mínir, þó ég sé hér á Spáni. Og sonurinn kemst á msn og myspace. Smile
Ég hlakka til að byrja að lesa .... en best að koma sér í sólina aftur núna......
Elsurnar mínar sendi ykkur sólargeisla yfir hafið og heim í hús......og stóran knús!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 


Ertu nú farin.... enn á ný

 Jæja, enn á ný flýg ég á brott....... eftir fáeinar klukkustundir sit ég í flugvélinni á leið í sólina (á mínar þriðju heimaslóðir) sífellt flakk á frúnni þetta árið LoL

þarna einhversstaðar verð ég þegar ég skrifa næsta blogg og skoða hjá bloggvinum mínum næst....auðvita hlakka ég til, en það kemur líka saknaðartilfinning þegar maður þarf að skilja eitthvað af fjölskyldunni eftir, en sem betur fer er þessi veraldarvefur kominn og gegnum tölvuna getur maður svo talað saman - með mynd þar að auki  - er þetta ekki snilld orðin ?-

Verð að klára að pakka og kveðja, elsku vinir, bloggvinir og hinir (rímar jú hehe) Heart ég kveð að sinni með þessari mynd hér að ofan og fallegu orðum. Sendi ykkur fallegar hugsanir, hlýja geisla og stóran knús!!!  Farið vel með ykkur og gangið heil inn í helgina *


góða helgi!

Lífið er draumur .... láttu hann rætast Cool 
Nákvæmlega það sem ég ætla að gera og hef gert..... þannig að ég dreymi draum í líkingu við myndina að ofan og flýg á morgun út í sólina á nýjan leik FootinMouth  flökkutík, æ knów!!!!!!!!!!!!

Lífið er söngur..... syngdu hann LoL 
Á Spáni get ég skemmt mér fyrir lítíð fé... á Spáni kostar sjússinn ekki neitt,
grísaveisla, dexitrín og diskótek
sólolía, bikiní og bús.
Á Spáááááni, á Spáááááááni Kissing

Lífið er leikur og við verðum að muna það að gleyma ekki barninu í okkur og "leika okkur" soldið Whistling

Veit ekki hvað ég verð lengi í þetta skiptið en hoppa bara í tilboðin - og læt þau EKKI framhjá mér fara ohhh nei!  Í þetta skiptið kemur yngsti prinsinn minn með mér,(aðrir verða að vinna í fjölskyldunni, það verður jú einhver að vinna fyrir þessum "tilboðum" sem ég get ekki hafnað ) Grin En yngsti sonurinn, hann þekkir sig jú þarna eða ætti maður að segja þekkir ekkert annað en "þarna" öll sumur síðan hann fæddist.. og þarna á hann sína góðu vini .. af ensku og spænsku bergi brotinn. Smile 

Hafiði heyrt um bókina; -munkurinn sem seldi sportbílinn sinn-   ? Hef nú ekki lesið hana en veit þetta er svona bók sem ég hef unum af að lesa... svona um venjulegan mann sem lifði í alsnægtum og rugli og varð munkur ... svona Cat Stevens dæmi.. hefði getað verið ég!!!! Svona "þankagangur" heillar mig!!!! Heart
Eins og Spánn og góða veðrið og sólin, stjörnurnar og mest og síðast heilla synir mínir og fjölskylda mig og er ég stoltust af þeim :D Hið sanna mikilvægi sálarinnar kemur best í ljós í daglegum samskiptum okkar við aðra...Woundering
Ekkert á að vera sjálfsagt - og munum það; að hvaða ávöxt líf okkar ber, veltur algerlega á því hvernig við lifum hvern dag.

Hvernig við verjum sérhverju dýrmætu andartaki lífsins sýnir okkar sanna innri mann - því enginn BLEKKIR neinn nema sjálfan sig...:$ Hlustum á tónana sem óma í hjarta okkar "essgurnar" mínar,  

 

knús að sinni og góða og heila helgi**


fimmtudagur

knúúús!! 

Stutt blogg í kvöld... með smá  gullkorni..Smile

Lífið er áskorun - taktu henni!´.
Lífið er söngur - syngdu hann!.
Lífið er draumur - láttu hann rætast! -
Lífið er leikur - leiktu þér! -
Lífið er kærleikur - elskaðu!

Eigið góðan fimmtudag og munið að okkur líður eins og við hugsum -
fimmtudagsknús Kissing


sól í mai

Langaði bara að segja HÆÆÆ í þessu yndislega veðri hér núna, sól og sumaryl.... er gott að vera til...lalaa!!!
sólarknús á þessum miðvikudegi  *


minn sæti

Fallega "ömmu"skottið mitt sem fæddist sama dag og ég (þó ekki sama ár Blush ) þar sem hann er aðeins 1 og 1/2 árs ...
Hann er baaaara fallegur og greindur og góður og og og og og og ....
eigið góðan þriðjudag ** knús


helgarlok

 

Af hverju get ég ekki verið FRÖNSK LoLLoL  hmm eða þannig!!!!!

Annars er löng og góð  helgi að baki og veðrið eitthvað að skána. Íslenski fótboltinn byrjaður og byrjaði aldeilis vel hér í Keflavík. Landsbankinn bauð viðskiptavinum sínum hér (þeim sem skulda mest LoL ) í mat og drykk fyrir leikinn, voða næs fyrir suma! Skildi þetta verða gert fyrir hvern leik W00t ??????
Annars er mitt lið í 2 deild, Reynir Sandgerði Wink Þar á ég einn af liðsheildinni. Áfram Reynir!!

 

*híhíhí* góður!!  En nú er komið nóg af bulli.... sá sem veit að nóg er nóg mun ætíð hafa nóg eða...
knús inn í nóttina*

 


mömmudagur og lokadagur "í den"

í dag er MÆÐRADAGURINN, tileinkaður öllum mæðrum....Þó ég sé ekki mjög meðmælt öllum þessum dögum, þá meina ég; reyklausa deginum, bónda- konu- valentínusar - og öllum hinum... þá finnst mér samt þessi dagur eiga rétt á sér!!! InLove
Mér finnst eigi að virkja þennan dag meira og auglýsa, þannig að þennan dag gætu allar mömmur fengið frí.... börnin yrðu extra góð þennan dag!!  Og ef það er kennt frá unga aldri læra börn sem fyrir þeim er haft *ikke?*  Heart 
Ég á 3 börn og ekkertf af börnunum mínum man þennan dag né hefur nokkurn tíma gert (eða allavega ekki sýnt  þeir muni hann).... þessi dagur er í mínum augum/huga nákvæmlega eins og aðrir dagar Pinch  Nema hvað; ????getur verið að ég rugli Errm ...snýst þetta kannski við; er þessi dagur kannski til að minna okkur á að við erum MÖMMUR....????!!!! Undecided Eigum við kannski að "stjana" svona "einu sinni" við ungana okkar GetLost þennan dag og td; vekja þau með kossi.... finna morgunverðinn.... leikfimitöskuna.... keyra þeim í skólann/íþróttahúsið/til vinarins...sækja þau svo þegar þau hringja... finna hádegismatinn..... ganga frá matnum... taka úr íþróttatöskunni og Þvo fötin sem þar liggja blaut... segja þeim hvað þau séu sæt, biðja þau fallega að fara nú að læra...elda kvöldmatinn... vaska upp.... kyssa þau svo góða nótt, þessar elskur og setjast svo niður og hugsa hve heppin við séum að eiga svona falleg og góð börn!!!!!!!!!  Eða eitthvað þessu líkt !... Blush Er kannski MÆÐRADAGURINN á hverjum degi InLove EÐA HVAÐ!!!   !!Crying 

Ég ætla að setja hér inn eins og eitt gullkorn til elsku sona minna þennan mæðradag; InLove
Elsku synir mínir þrír, þakka ykkur fyrir að vera til... að þvælast fyrir mér, valda mér andvökunóttum, kosta mig ómælt fé og raska áætlunum mínum... Hvað í ósköpunum hefði ég gert án ykkar? LoL
Ég veit ég ..má ekki láta mig dreyma draumana ykkar,
heldur gefa ykkur tækifæri til að dreyma ykkar eigin drauma -
og gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að hjálpa ykkur að láta þá rætast!!!
Þið eruð yndislegir og fegrið líf mitt - litlir sem stórir!! Ég ann ykkur og elska ykkur meira en allt... í dag og - allt til æviloka!! InLove

mömmudagsknús til allra **


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband