Færsluflokkur: Bloggar
Hvítasunnuhelgi
10.5.2008 | 00:08
sko!!! mér tókst það (að setja inn mynd) ... Þetta er nákvæmlega eins og ég sagði ykkur, sjónin eitthvað farin að aflagast þar sem ég sé mig eins og fyrir 25 árum í speglinum *stelpan ég*
Ekki er hægt að minnka hamingjuna með því að deila henni með öðrum. Því hún er eins og logi. Eitt kertaljós getur tendrað mörg önnur ljós en samt skinið skært eftir sem áður.
Lítið gullkorn fyrir þessa helgi*
Góða Hvítasunnuhelgi allir sem hingað kíkja*
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
helgi framundan
8.5.2008 | 19:26
jæja maður þarf bara að setja á sig "sól"gleraugu "bjartsýninnar" svo gott er veðrið í dag- sé ekkert nema gott sumar framundan!! Hvað með ykkur ??? Og þegar veðrið er svona fallegt, finnst mér best að drífa mig út og muna að njóta. Gleyma ekki að lífið getur verið eins og RJÓMAÍSINN... þannig að maður verður að njóta hans áður en hann rennur niður
.... Verður maður ekki bara "léttur á fæti"- "kát sem kið" - og "frískur sem fiskur" á svona góðum degi' ?
Ég vildi ég kynni að setja inn myndir á mbl.is bloggið hér... mér er það hulin gáta hvernig það er gert? Ég get náð í myndir og sett í albúm en ekki komið þeim hér á bloggfærslu... (kannski er það bara eins gott! )
Nú fer enn ein helgin í gang, og núna er það Hvítasunnuhelgi.. mætum nú helginni eins og við ráðum yfir henni, þetta eru stundirnar okkar og við ráðum hvað við gerum við tímann..... grípum hann og elskum, hjálpum og sköpum... (en nú er þetta að verða komið nóg hjá mér)
Líðandi stund er ávallt það andartak sem mikilvægast er að hlúa að...
skjáumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
silfurbrúðkaup
7.5.2008 | 00:13
Í dag 7 mai á ég silfurbrúðkaupsafmæli = sem þýðir 25 ár í hjónabandi
vááá!!! Eins og gerst hafi í gær, ótrúlegt hvað lífið, árin, mánuðirnir, vikurnar, dagarnir, klukkutímarnir, mínúturnar eru allt allt allt of fljót að líða
...Svo lít ég í spegil og sé sömu stelpuna og ég var fyrir 25 árum
(gott að sjónin aflagast svona líka) og minnið skekkist, þannig að þetta er bara allt eins og var fyrir 25 árum síðan!!!!! (nema kallinn sem ég er gift heheheheheeheh!!!)
Las einhvern tíma að besta lækningin við elli væru góðar minningar um skemmtilegar stundir í góðum félagsskap ..
En á "meðan ég man".. löppin er öll að koma til, reyndist ekki brotin, heldur aðeins tognuð og ég ÆTLA að komast í ræktina amk næstu viku ef ekki fyrr
Eins og ég hef sagt (ef ég man það rétt... veit ekki af hverju mér finnst ég allt í einu gömul ?) þá er þetta ár svona afmælisár...fullt af tilefnum til að fagna og halda uppá Gaman !!!!!
En það má líka alltaf finna fjölmargar ástæður til þess að láta sér líða vel... og ein besta leiðin til þess er að byrja á því að BROSA
"Sælir eru þeir sem láta hrífast af ástinni,
heillast af fegurðinni
og stjórnast af skynseminni"...
Sendi ykkur bros inn í daginn krúttin mín
PS; SETTI NOKKRAR LÍNUR Á BLOG.CENTRAL BLOGGIÐ MITT, ÞIÐ SEM HAFIÐ LEYNIORÐIÐ OG EÐA LANGAR AÐ KÍKJA ..... velbekommen **
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
home sweet home
5.5.2008 | 00:18
Jæja þá er maður mættur á nýan leik á heimaslóðir í rigninguna - missti víst af "góða"veðrinu sl daga, en það hlýtur að koma aftur, og ekki er ég að kvarta yfir veðri, enda búin að vera í sól og sælu sl 10 daga
Var þó svo óheppin er ég steig fram úr rúminu í morgun að löppin "gaf sig" eða eitthvað í þá veru og ég steinlá á gólfinu, steig einhvern veginn ekki í löppina heldur á ristina og nú er ég stokkbólgin og vafin í teygjusokk og bíð eftir röntgen á morgun ó mæ god og ég sem hef bætt á mig nokkrum kílóum í sælunni þarna úti og ætlaði nú aldeilis að taka á því í ræktinni
en hver veit..... kannski rætist úr þessu og þetta er bara smá-tognun og ég næ mér á viku eða svo? Þá hoppa ég í ræktina af gleði -- ef ekki.. þá verð ég bara að hætta að borða grænmetismatinn sem ég ét (þar sem ég er grænmetisæta) og reyni við ávexti
æi þetta kemur í ljós!!!
Er allavega glöð að komast í tölvuna mína aftur og fara blogghringinn í rólegheitum, nóg lesefni framundan, það er nefnilega þannig að sum ferðalög lífsins förum við innra með okkur og þau ferðalög taka engan enda.
Munum því elsku vinir, bloggvinir og aðrir ..að fólk sem lifir lífinu með opnum huga færir bæði sjálfu sér og öðum gleði og hamingju.... Eigið góðan mánudag og vinnuviku framunda -
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sol sol skin a mig
30.4.2008 | 20:27
Kominn á netkaffi til ad kikja a blogglidid og frettir Sama blidan her a Spani, enda aetlunin ad koma heim i dag midvikudag en framlengdum til laugardags og verdum tha komin heim adfaranott sunnudags
Ekki amalegt í solinn her og goda vedrinu.
Hef oskop litid ad segja, reyni ad standa stundum upp ur sól-stólnum og teygja úr mér milli thess sem ég lyfti Sangría glasinu og sný mér á hina hlidina
. En eins og allt annad, tekur thetta enda og ádur en eg veit af er eg kominn a fullt i thrif og thvott heima a fróni, standandi vid eldavélina ad kalla a lidid í mat... og hvort sé búid ad laera
En er á medan er........... reyni ad senda eitthvad af sólargeislum og hlýindum heim, knúúús**** frá Spáni....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
sol og saela
27.4.2008 | 20:29
Allt super ad fretta frá Espania
thvílikt vedur og saela hér hjá okkur styttist i heimferd
Sendi hlyjar kvedjur heim **
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
gleðilegt sumar
23.4.2008 | 12:05
Gleðilegt sumar mia amigos¨ ég ætla að taka sumardaginn fyrsta á þriðju heimaslóðum mínum Spáni þetta árið.
Kem aftur 1 mai.... Hasta luego ...
Eigið yndislegan sumardaginn fyrsta og enn betri helgi framundan...
sumar- og sólarknús og klem
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
góða helgi
19.4.2008 | 02:16
Ég er bara ekki að "geta" bloggað þessa dagana. Bara einhvern vegin orðlaus og andlaus þó ég sjái hækkandi sól og finni lyktina af sumrinu nálgast .
Sendi bloggvinum mínum og hinum sem lenda hér óskir um góða og heila helgi.
"Those who bring sunshine to the lives of others, can not hide it from themselves."
Helgarknús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Stjörnum stráð nótt
16.4.2008 | 01:43
Sólardagar létta lundina Það styttist í sumarið, sumar og sól, "já sumar sumar sumar og sól" .. Ég hlakka til að fara göngutúr á ströndinni á hlýju sumarkvöldi, það er í mínum huga einskonar ferðalag um sál nátturunnar... en meira um það í sumar
Við verðum að þekkja muninn á því að vera lifandi og að lifa lífinu lifandi og muna það að líf gæfuríks fólks mælist ekki í krónum heldur óbrotnum ánægjustundum.
Hægjum á okkur og njótum lífsins því ef við förum of hratt missum við kannski af fegurð landslagsins - og við töpum í leiðinni tilfinningunni fyrir því hvert við erum að fara og hvers vegna.
Þegar hamingjan er annars vegar eru reglurnar bara tvær; byrja og halda áfram!!
Eigið góðan dag!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Helgarlok
13.4.2008 | 23:26
Jæja þá er komið að helgarlokum og ný vinnuvika framundan
Ég átti frábæran laugardag með "jafnöldrum mínum" hitti ný andlit og "gömul" andlit, dönsuðum síðan fram á rauðan morgunn við tónana frá Roof Tops og skemmtilegar minningar frá skólaárum bárust til mín á vængjum tónlistarinnar. Þetta var stór hópur skemmtilegs fólks, og það var yndislegt að sitja og spjalla, dansa, hlæja, og leika sér í fortíðaranda - ég held svei mér þá að ég hafi yngst um 20 ár eða svo.
Ég tel mig svo heppna að eiga tvær heimaslóðir ( þrjár ef ég tel Spán með) sem ég tel mig tilheyra, og ég hef skipt mér bróðurlega á milli þessara heimaslóða í lífinu. Fyrstu 14 árin átti ég á Eyjunni sem ég fæddist í, Heimaey .. en þá kom eldgos árið eftir fermingu hjá mér og ég þurfti að upplifa það og flýja heimaslóðir ... þá flyt ég á Suðurnesin, þar sem ég ílengist næstu 13 ár á eftir, þar finn ég minn ektamann og eignast eitthvað af börnunum . Þá ákveð ég aftur að flytja á Eyjuna mína fögru og bý þar næstu 18 árin í lífi mínu ..en þá var komið að því að flytja aftur á Suðurnesin og hér er ég nú og reikna með að verða næstu árin
. Eða eins og einn sagði sem hitti mig í gær; heyrðu fluttirðu aftur til Eyja ? og ég svaraði já, en er kominn aftur hingað ...Heyrðu, viltu ekki reyna að fara að ákveða þig hvar þú ætlar að vera
(þetta hljómaði nú fyndnara í gleðinni á ballinu)
Þannig að ég er svo heppin að fylgja 2 árgöngum.... og næsta árgangspartý er hjá mér í Eyjum á næsta ári
Nóg að gera, eða þannig
Já, þær eru margar stundirnar í lífinu sem hægt er að hlakka til; og mínar uppáhaldsstundir eru þessar ljúfu og innilegu.
Munum að leyfa gleðinni að vera aðalatriðið í lífinu, því þá öðlumst við hæfni til að deila gleðinni með öðrum.
"Hamingjan býr í sekúndunni þegar ég slekk ljósið, loka augunum og bora nefinu ofan í koddann";, góða nótt!" og stórt *bros*
Bloggar | Breytt 14.4.2008 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)