Færsluflokkur: Bloggar

*bros* inn í nóttina

Eitthvað "busy" þetta kastið og ekki beint í bloggstuði. En engar fréttir eru jú betri en slæmar fréttir Pinch  Dagurinn alltaf að lengjst, fallegt veður, logn og sól í allan dag í bland við hvíta jörð. Vinna, tiltekt og ræktin kláraði þennan dag og framundan "djamm"helgi með Roof Tops á Árgangsmóti váá hvað það verður gaman, að rifja upp gamlar og góðar minningar er jú alltaf kærkomið !!  Roof Tops, hef ekki sagt þetta nafn í ein 30 ár að minnsta kosti FootinMouth Cool

En nú ætla ég að skreppa í heita pottinn og hlusta á þögnina á meðan ég horfi á stjörnurnar og tunglið og finn mína innri ró.  Síðan eru það draumaheimar. 
Og þar næst gleðst ég yfir nýjum degi að morgni Grin


Helgarlok

Jæja, kominn sunnudagur og "söngur, hróp og ohahha" enska boltans úr sjónvarpinu hljómar hér um allt hús - Gasp Ég er nú frekar svona fótbolta"týpan" en ...... það er nú ekki sama hverjir eru að spila og ef á að hafa þetta á ...allan sólarhringinn alla daga, þá heyrir maður ekkert annað GetLost  en þennan söng....En hver er að kvarta, ekki ég !!!!Shocking

En það er fleira á dagskrá í helgarlok en fótbolti, því ég er jú að passa "ömmu-hundinn" minn Dimitar (sko skírður í höfuðið á Dimitar Berbatov þeim flotta fótboltamanni úr "mínu" liði, Tottenham) Kissing Eigandinn hans Dimitars er elsti sonur minn, sem er núna að keppa sjálfur í fótbolta í dag - Áfram ...!!!!!!!!

Síðan er það fermingarveizla núna klukkan 15.00 hjá systrasyni eiginmannsins, og þar verður jú stórfjölskyldan þeim megin og svignandi borð af tertum,  þannig að munnurinn ætti að hafa nóg að gera, ef ekki tyggja þá tala *blabla* FootinMouth 
Já, þúsund ástæður hamingju og gleði í dag eins og aðra daga og það eina sem slær köldum, björtum vordegi við, er....... að líða vel á köldum björtum vordegi Wink
Og við erum svo heppin nú á dögum Internets að það er hægt að senda *sýndarfaðmlög* og *kossa* yfir landið/heiminn þvert og endilangt  - hvenær sem þörf er á og ekki þörf.... og það veitir þá  kannski einhverjum  "samstundis" gleði og/eða ánægju Grin, og ákvað ég  því  að enda þessa bloggfærslu mína - á að senda ykkur bloggvinum mínum og öðrum sem kíkja hér við eins og einn *koss* og *faðm* á þessum fallega sunnudegi í apríl.
InLove


Heim á ný

Jæja þá er maður kominn þeim megin á vegasaltinu þar sem gleðin við að spretta á fætur og ganga glaður að verkefnum dagsins taka við.....eftir nautn þess að hafa tekið mér frí og gert EKKERT einhverja dagaFootinMouth Og satt best að segja finn ég varla betri leið til að gleðjast en einmitt í göngutúr eftir sendinni strönd á fögrum sumarmorgni í glampandi sól og fuglasöngi.
En lífið er ferðalag.. og til þess að njóta þess verður maður að vera öðru hvoru að skreppa á hinn staðinn GetLost Já þetta var yndisleg ferð til Spánar þar sem hitinn fór ekki undir 20 gráðum enda er þetta staður sem hefur alltaf heillað mig... ( segir það ekki heilmargt um mann sjálfan) staðir sem heilla mann ??Undecided

En nú er ég kominn heim á ný, eftir 11 daga, þar sem ég lenti í fullt af ævintýrum ... þó þau væru ekki öll eintóm hamingja, þar sem sorgin knúði dyra einnig. ..Crying  Ég lenti í að bíllinn bilaði sem ég var á þegar ég kom út, þurfti að finna verkstæði og bæta úr því og eins og annað á Espanía, er ekki verið að flýta sér þar... hasta manjana heyrir maður oftast LoL... síminn virkaði ekki, og netið  því ekki... og ekki er enn búið að finna út úr því - og síðasta og erfiðasta sem ég upplifði í þessu 11 daga fríi mínu var dauðsfall og jarðaför góðs nágranna (ensk kona) sem ég hef þekkt í ein 10 ár. Þetta var upplifun, allt öðruvísi en maður hafði upplifað áður að fara í jarðarför hjá enskri konu á Spáni ....en á erfiðum stundum reynir maður síðan að finna sína innri gleði með því að athuga hvað er utan dyranna sem maður stendur innan við/ eða þannig!!Halo .... Í þessari jarðarför (ólíkt því sem ég þekki hér heima þar sem við syrgjendur gefum hinni látnu blóm) snýst þetta við þarna þar sem við  fáum með okkur fallega bleika rós (í þessu tilfelli) og ég get sagt ykkur að ég hugsaði til Janet (þeirrar sem dó) alla daga eftir jarðarförina þegar bleika rósin fór að blómstra fyrir framan mig.  - InLove - gefum blóm á meðan augun sjá það, ekki þegar ég er kominn í kistuna og fæ ekki notið þeirra - einhvern veginn þannig hefur mitt mottó verið !!! Svo þessi hugmynd fannst mér alvega "brillíant"

En angurværðin sem getur fylgt þvi að vera fjarri ástvinum sínum um hríð eykur svo sannarlega gleði endurfundanna.....  og nú er ég kominn heim og tek fagnandi á móti köldum frostkossum vetrarnæðingsins (miðað við Spánarblíðuna) á vangann....Kissing 
Eigið góðan dag og komandi helgi ....


Hola!!

Hola allir!
Netid bilad svo eg kemst ekkert til ad vafra her um Angry en vid vinkonurnar hofum thad frabaert i 20 til 25 stiga hita og sol sidan vid komum hingad.

Sit a netkaffi og svolgra i mig fréttirnar og bloggheiminn a 15 minutum LoL verid god vid hvort annad... Spanskur knus !!!


Gleðilega páska

vildi bara segja Gleðilega páska til þeirra sem kíkja hér. Ég er á förum til Spánar laugardag og borða þá páskaeggið mitt þar í sólinni "vonandi" Cool ... Ég læt nú sjá mig "að utan" svona endrum og eins ... svona þegar ég má vera að því að standa upp úr sólbekknum Wink
Vonast til að koma endurnærð heim á ný með fullhlaðin "batteríin", sæt og sólbrún á vanga.
Farið varlega elskurnar mínar, og njótið páskafrísins.
þangað til næst..., Adjös mia amigos!!!!  Heart

:-)

Mikilvægara er að þekkja það sem er.....en að sjá fyrir það sem verður!!!!
fokkkk.. ég var búin að skrifa stóra bloggfærslu þegar netið datt út hjá mér og þar með bloggið Gasp
Meðan ég hlusta á ljúfa tóna leika við sálu mína, vafra ég um á netinu og undir það síðasta er ég farin að lesa svo margar bloggsíður... bloggsíður bloggvina minna, að ég er eiginlega orðin orðlaus sjálf, þó svo ég hugsi margar hugsanir sem hugsandi manneskja Whistling ..hugsanir verða að orðum, orð verða að gjörðum, gjörðir verða að venjum...og svo framvegis...En ég bara kemst ekki yfir það að koma þeim á "blað", enda miklu skemmtilegra að skoða myndir og lesa blogg ....
Bloggarar er þó mismunandi, hjá sumum skellir maður upp úr LoL öðrum tárast maður hjá Frown einhverjir eru bölvaðir röflarar, og síðan finnast hér  stórgáfaðir karakterar sem leyfa okkur að lesa um það hvernig við ættum að breyta öllum heiminum "ummm" ef það væri nú hægt !!! 
En mitt í þessu öllu finn ég þó hve hlýleg orð geta skipt sköpum í lífi annarra eins og ósögð orð geta  valdið hugarangri ....

Ennnnnnn þar sem við vökum til að sofna og sofum til að vakna í þessu lífi  FootinMouth .. er best að drífa sig í heita pottinn fyrir svefninn og finna djúpa ró í frjóum friði Halo  er ekki sagt að einveran rói mann mest ?
Brosum, því Guð elskar okkur, og höldum áfram að brosa og þá munu aðrir brosa með okkur SmileHeart


*Bros*

Hello!! Gleymdi mér og datt aðeins út úr blogg-veröldinni- en ég er ekki horfin, ég er hér og fylgist með "ykkur" !!!!

Ég er nú kominn með dálítinn spánar"fíling" inside me, þar sem ég hef skroppið amk 5 undanfarna páska á Suðrænar slóðir. Ákvað að breyta til þessa páska og vera heima - en einhver fiðringur er að vakna innan í mér, svo hver veit, ???kannski maður skelli sér bara upp í flugvél næstu daga og úúút!!!!! -Með sangríu í ermalausum bol- hóó!!

Annars er alltaf best að vera bjartsýnn en ekki eins og svartsýnismaðurinn sem; líður illa þegar honum líður vel af ótta við að honum muni líða ver þegar honum líður betur, eða þannig sko!

Sá bjartsýni;"Vertu ekki með þennan eymdarsvip! Ástandið er ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera."
Sá svartsýni; "Nei, en það lítur út fyrir að vera það." heheheehheheeheheheh!!!!!
Já,já las einhversstaðar að við konur tölum mikið en þó segjum við ekki helminginn af því sem við vitum heheh!!!

Eigið góða vinnuviku, brosið og farið varlega ..**


speki

Ég ákvað þegar ég hóf bloggskrif að skrifa jákvæð blogg Smile   (ekki það að ég sé neikvæð manneskja) þó ég eigi vissulega mínar stundir eins og flestir FootinMouth . En það hefur samt alltaf gefið mér fyllingu að skrifa um lífið, tilveruna og manninn og það sem gerir lífið þess virði að því sé lifað. 
Mér finnst við vera svo oft að bíða; bíða þess að nú fari líf okkar senn að hefjast fyrir alvöru Woundering. Þá meinum við, "hið ljúfa líf", þar sem við erum hamingjusöm og sátt við lífið og tilveruna. 
Það virðist samt alltaf vera einhver hindrun í veginum, eitthvað sem þarf að gera, ljúka við fyrst, áður en við getum farið að lifa lífinu. Ég hef sem betur fer áttað  mig á því að þessar hindranir eru jú; LÍF MITT. 
 
Sá vegur er ekki til sem á enda sinn í hlaði hamingjunnar. Því hamingjan er vegurinn.Heart
Munum því að láta okkur annt um öll augnablik lífsins. Fara vel með tímann og njóta hans og muna að tíminn bíður ekki eftir neinum  Wink
 
"Hvert barna þinna elskar þú mest af öllum þínum þrettán börnum?" spurði hjúkrunarkonan móður eina.
Móðirin; "Það sem er veikt þangað til því batnar og það sem er úti þangað til það kemur heim." Kissing 

Önnur rök tilverunnar...

Ég svaf  Sleeping og mig dreymdi.....Halo
Engill leiddi mig við hönd sér inn í land sem var miklu fallegra en allt það sem ég hafði áður augum litið. Alls staðar voru börn að leik, þau voru yndisleg. Ástfangin pör á gangi alls staðar og allir virtust ánægð með lífið.
Engir í fýlu, stressaðir eða útigangar, fullir eða dópaðir, engir að rífast og og .. og þar voru engin sjúkrahús, engin fangelsi, engin lögregla, engir glæpir og engin tár.

En ég hrópaði hátt; "Ég vil fara heim". Landið er fagurt, en......Errm
Hér er ekkert hægt að eignast neina sanna vini því sönn vinátta er vökvuð tárum og blómgast aðeins í svalviðri mótlætis. Hér er ekki um neinn fastan vilja að ræða.
Hér er engin gleði vegna þess að hér er engin sorg.
Og ég vaknaði.!!Woundering 
Það eru nefnilega ekki síður hjartasorgirnar en hamingjustundirnar sem skapa innileg tengsl innan fjölskyldunnar og milli vina. Þó ég vildi óska að ég gæti bjargað öllum frá sorgum og áföllum og mistökum í lífinu,.... þá væru þau bara ekki lengur eitt af okkur hinum hér á þessar jörð FootinMouth

Þannig það eina sem við getum gert, er að fá það besta út úr hverjum degi LoL


Lífsánægja

Islendingur einn var staddur við höfnina í litlu sjávarþorpi á Spáni. Hann sá lítinn bát koma að.
Einn maður var um borð og margir stórir túnfiskar. Íslendingurinn spurði fiskimanninn hve lengi hann hefði verið að veiða þetta. "Smástund", var svarið.
"Af hverju veiddir þú þá ekki meira?" "Ég hef ekkert að gera við meira," svaraði fiskimaðurinn, þetta nægir fjölskyldu minni vel.
"Hvað gerir þú þá við tímann?" Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn.
 "Ég sef fram eftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "síesta" með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér kaffi eða vinglas og leik á gítar með vinum mínum."


Ég get gefið þér góð ráð," sagði Íslendingurinn. Ég er með MBA í Viðskiptafræði. Þú átt að vera lengur á sjónum. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ert þú ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verzlað beint við verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum!!!
Þá getur þú ekki búið hér lengur en flytur til höfuðborgarinnar.
Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn
Svona 20-25 ár. En hvað svo? spurði fiskimaðurinn aftur


"Þá kemur stóra stundin. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með margar milljónir..
"já"; sagði fiskimaðurinn, en "hvað svo"?
Íslendingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan;
"Þá flytur þú  í lítið fiskiþorp, sefur fram eftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við barnabörnin, tekur "síesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas eða kaffisopa og hlustar á tónlist með vinum þínum Wink

Já það er vandlifað í þessu lífi  og tekur menn alla ævina að læra listina að LIFA.  Whistling


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband