Færsluflokkur: Bloggar

Bros

Látum vera þó að sagan endurtaki sig -
hitt er verra þegar fólk endurtekur sögur sínar LoL
Best að hafa þetta þá stutt að þessu sinni Whistling

Þannig að það er bara einn stuttur fyrir svefninn:
Guð skapaði karlmanninn á undan konunni Errm
Ég hef sama hátt á þegar ég skrifa..
Fyrst geri ég uppkast híhíhíhí!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Góða helgarrest Halo


góða og heila helgi

Já .. ég er bara að hugsa um að ílengjast hérna eitthvað, svo skemmtilegt hérna á moggablogginu -auðvita held ég áfram til að byrja með á "gömlum slóðum" blog.central síðunni minni, en eins og sagt er; það verður alltaf nýtt upphaf þega maður fer burt af gamla stígnum sem maður þekkir svo vel, en hér er líka margt að sjá, lesa og skynja. ... og skemmtilegir "bloggarar" sem ég hlakka mikið til að fylgjast með ........

Segi eins og "krakkarnir" á myspeisinu; takk fyrir vinaboðið, eða takk fyrir að accepta mig :-)

Óska ykkur öllum HAMINGJU!!!!!þó ekki þeirrar sem keypt er því verði að loka heiminn úti,né heldur hinnar að loka inni drauminn,af því að annað er hagkvæmara.

Sendi öllum HUGREKKItil að gera allt sem við gerum eins vel og við getum,og að þora að reyna,þora að gefa,og að þora að elska. Megi þið sofna rótt að kveldi, hlakka til næsta dagsog vakna hress að morgni !!Góða helgi <3


góðan dag!

Verð nú að blogga nokkrar línur þar sem ég er komin með fullt af bloggvinum - Ég fer nú að hallast á það að mbl.is bloggið sé nú bara skemmtilegt. En ég er svo vanaföst og trygglynd þannig að ég get ekki hugsað mér að yfirgefa mitt aðal-blogg sl 2 ár alveg, en þar er ég svona meira á heimaslóðum :-)

Lífið hér í Keflavíkinni gengur sinn vanagang, hér rigning í augnablikinu þannig að það a einhversstaðar eftir að leka inn hjá einhverjum í þessari hláku sem orðin er núna. En ég segi alltaf; allt er betra en snjórinn, og þar spilar líka hálkan inní, hún er bara versti óvinur minn. Ég auðvita líka hrædd um yngsta prinsinn minn sem er í Verzlunarskólanum og þarf að keyra Reykjanesbrautina 2svar á dag.

A hug is a great gift -
One size fits all!!!!


Góða helgi

Því meira sem maður skoðar moggabloggið, þeim mun fleiri sér maður hér sem maður kannast við og langar að bæta við  blogghringinn sinn, þeas hringinn sem maður fer og kíkir á.. er ég sest niður og tek smá rúnt um Veraldarvefinn.. Blush  Fullt af Vestmannaeyingum Smile "eins og mér" og þar sem ég er brottflutt er jú alltaf gaman að lesa góðar fréttir frá Eyjamönnum .

Þannig að þó þetta mbl blogg sé bara "hliðarblogg" hjá mér, þar sem aðalbloggið er á blog.central.... kemur nú til greina að maður fari að virkja þetta blogg betur, hér er FÓLKIÐ ...virðist vera Woundering

Mottó dagsins í dag; ALWAYS BE A LITTLE KINDER THAN NECESSARY!!!Halo


halló

Blush Ég kem nú sjaldan hér orðið!
Er stödd á Spáni "once again" kem heim fyrir helgi ....

Sá sem þekkir takmörk sín og gæfu sinnar
mun njóta hennar ævilangt
en sá sem eltist við villuljós eigin hvata
hrapar á endanum ofan í tómið!

Bara lítið heilræði að gamni! Smile
Góðar stundir


:-)

þjóðhátíð er nú löngu liðin og ágúst mánuður senn á enda.
Allt líður þetta !
þar sem ég er ekki beint þessi mbl.is bloggtýpa (hvernig skildi hún nú vera ? ) Blush þá held ég áfram að blogga bara á blog.central bloggsíðunni minni og kíki hér við endrum og eins. Ég hef jú alltaf gaman af að kíkja á nokkra mbl.is bloggvini í þessum bloggheimum.Cool

Nú nálgast Ljósanótt í Reykjanesbæ, alltaf falleg sýn að sjá kveikt á ljósunum á Berginu og flugelda-sýning á heimsmælikvarða Wizard(og er ég þó mikill eyjamaður) eða kona- Wink og vön flugeldasýningu á þjóðhátíð frá unga aldri. En hún slær varla Ljósanætur-flugeldasýningunni við.
Svo þið sem ekkert hafið að gera næstu helgi, takið einn rúnt til bítlabæjarins og skoðið ljósin ....

Lifið í ljósinu **


hvítu tjöldin þjóðhátíð..

Ég sá mig knúna til að blogga um þessa frétt (annars læt ég vera að blogga um fréttir almennt) .. þar sem rígur myndaðist í dalnum vegna tjaldstæða...í Eyjum 
Einhver bloggaði um að, af hverju ekki að halda uppboð á tjaldstæðum, þá myndu IBV ná þar í peninga því allt gengur þetta náttúrulega út á að ná í pening fyrir IBV íþróttahreyfinguna, þegar annar svaraði´eða commentaði um að Maggi Kristins myndi þá kaupa öll tjaldstæðin og selja þau svo helmingi dýrar´Errm, og þá sæti verkamaðurinn ekki við sama borð og yfirmaðurinn... þetta væri hluti af þjóðhátíðinni að rífast um tjaldstæði taldi hann ..

Nei, mín skoðun er sú; að uppboðið kæmi alveg til greina, Maggi Kristins færi ekki að blanda sér þannig inn í það,en eins og þetta er í dag þá bara;......EIGA MENN TJALDSTÆÐI, EÐA TELJA SIG EIGA ÞAU FRÁ ÖRÓFI ALDA...... og enginn myndi voga sér að tjalda þar (td er þetta heil gata Veltusund) og fleiri...
Ef þessir menn eru ekki búnir að setja band í stað súlna löngu fyrir dagssetn. sem má tjalda eru þeir amk mættir deginum fyrr og setja sitt........það er enginn möguleiki fyrir almúgann að ná stæðum nema þar sem er laust og þessir (helm eyjamanna) búnir að planta í "sín" stæði.
þannig að uppboð á tjaldstæðum tel ég ekkert svo afleitt.....það þarf einhverja breytingu og því ekki að fá pening fyrir IBV í staðinn...
Þannig er þetta í raun, enda lögreglan ekkert að hafa afskipti af smá ríg....
Nú eru þó allir IBV(arar) áður var það ÞÓR og TÝR heheh!!!

En óska öllum Gleðilegrar þjóðhátíðar, og að veðurGuðinn verði með ykkur
í dalnum ** ég raula þjóhátíðarlagið hér á Spáni á meðan Grin


mbl.is Fyrstu Þjóðhátíðargestir mættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Buenos dias !

Snúðu andliti þínu í birtuna og myrkrið mun aldrei ná að umlykja þig !

Ég verð nú að setja nokkrar línur hér inn, bara svona svo ég sé með Wink 
Ég á lika orðið nokkra bloggvini og glöð með það Smile
Þori varla að skrifa það hér í "beinni" en......ég er enn á Spáni Cool og fer ekki heim fyrr en um miðjan ágúst, þannig að ég er bara orðin brún og sæt híhí!!!  (eða þannig!)

Munum að láta ekki daginn líða án þess að gera eitthvað til þess að láta drauma okkar rætast!!
Og falleg og elskuleg orð, sögð í einlægni, endurnæra sálu okkar
Spánskar hlýjar kveðjur til þeirra sem líta hér við -
Adjos að sinni!


lifandi enn

Vildi bara láta vita að ég er lifandi enn Wink og meira að segja enn á Spáni ...
Einnig að þetta er bara "plat" bloggsíðan mín - aðallega fengin til að commenta hjá vinum og vandamönnum á mbl.is blogginu ,... þó ég gæti það víst án þess að vera búin að stofna svona bloggsíðu.......en þó, ég kann það ekki.

Þannig að ég held áfram á www.blog.central.is/gantonia blogginu mínu - þar sem mér finnst auðveldara að tjá mig þar um allt, frá hjartasorg til gleði og þess á milli Woundering
Eigið dásamlega sumarrest, eftir undraverða veðurtíð
Sendi rafkveðjur til ykkar yfir hafið og heim ***


brosum þá fáum við bros á móti

Að vakna á hverjum morgni með þeim hætti að bros lýsi upp alndlit mitt;  að heilsa deginum fullur lotningar fyrir tækifærunum sem hann ber í skauti sér.
þannig óska ég að mega eyða ævidögum mínum - vel og viturlega!

Er stödd á Spáni í 30 stiga hita og sól!! Cool bara gleðilegt það!
Sendi knús til þeirra er kíkja hér við*
Lifðu því lifandi sem þú vilt lifa
Gangið á Guðs vegum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband