Færsluflokkur: Bloggar
góða helgi
26.5.2007 | 12:24
Það læðist einn og einn bloggvinur hér inn og er ég þakklát fyrir það .. þar sem ég kann ekkert að biðja aðra um að vera bloggvini ??? - bíð ég bara eftir að einhver vilji mig og biðji mig
að vera bloggvinur sinn !!! Er ekkert að "nenna" að læra á þetta !!
Annars dásamlegt gluggaveður í dag og gott í skjóli einnig !
Gleymum aldrei mikilvægi þess að lifa
Dagurinn í dag og þessi einstaka stund er gjöf
Látum undursamlega veröld alls þess sem lifir ekki framhjá okkur fara
Við erum listamenn í listinni að lifa
listin er líf okkar
www.blog.central.is/gantonia
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
minnispunktur
21.5.2007 | 17:23
Muna bara að kíkja á bloggið mitt (hitt) www.blog.central.is/gantonia
og ekki gleyma detox-blogginu okkar sem höfum verið í póllandi með Jónínu Ben á heilsuhælinu og erum eins og nýslegnir túskildingar........allir að hugsa um heilsuna og skella sér þangað!!!
www.blog.central.is/detox
knús og góða viku!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
brosum :--)
15.5.2007 | 02:18
Langt á milli blogga hjá mér hérna. En núna eru kosningarnar búnar og kannski við taki skemmtilegra viðfangsefni á bloggsíðum ekki það að ég sé á móti stjórnmálum - en allt er gott í hófi!!!
Munum að hláturinn er smyrsl á sálina,
við hlæjum ekki af því við erum hamingjusöm -heldur -
við erum hamingjusöm af því við hlæjum!!!
Þess vegna skulum við hlæja, brosa og leika okkur !!
Verum sjálfum okkur samkvæm, það er leiðin til hamingjuríkra lífs!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mánudags-bros
7.5.2007 | 02:19
Silfurbrúðkaup mínus 1 ár.......já í dag á ég brúðkaupsafmæli 24 ár og því aðeins 1 ár í silfurbrúðkaup hjá okkur "omg" er maður orðinn gamall eða ??
Gleymum aldrei hamingjunni og munum að;
Náðin er kóróna sálarinnar,
skynsemin er höfuðið
réttlætið augun.
Ástin er hjartað
hugrekkið hendurnar
hófsemin búkurinn
frelsið fæturnir.
Lognið berst úr huganum
Missum ekki af lífinu á leið þess...því sérhver dagur er góður dagur !!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mai mánuður
2.5.2007 | 15:27
Jæja, kannski aðeins of langt milli blogga hjá mér en eins og þeir sem þekkja mig vita, þá er mín bloggsíða á ; www.blog.central.is/gantonia ... þessi bloggsíða er bara "plat" svo ég geti commentað án þess það sé vesen, á bloggsíðum mbl.is hjá vinum og vandamönnum.
Samt sem áður set ég nokkur orð hér - endrum og sinnum- just for fun!
Eitt af mínum uppáhalds-gullkornum;
Ef heilbrigð erum hugur girnist flest,
heilsan gleymist þegar hún er best,
en bresti hún, við bara þráðum eitt,
að BATNI okkur, annað ekki neitt.
Unnur Sólrún.
Eigið góðar og heilar stundir!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt sumar !!
19.4.2007 | 01:41
Fæðing og dauði; tveir viðburðir í flóknum leik sem við nefnum lífið. Á milli þeirra er tímaskeið sem við ættum að njóta
Leitaðu heiðríkjunnar á himni,
trúðu á upprás sólarinnar.
Syngdu þótt heimurinn stynji.
En það sem ég ætlaði að segja; GLEÐILEGT SUMAR OG TAKK FYRIR VETURINN!!!
Megirðu lifa í þúsund ár og ég með þér til að telja þau...
Sumarknús í krús ***
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
lifandi :-)
15.4.2007 | 16:10
Já eins og þeir sem kíkja hingað, (reyndar ekki margir!) sjá , nenni ég ekki að stunda bloggheiminn þessa stundina.
Lífið er hvorki hringur né lína, og þroskaleiðir manna eru margar og margvíslegar. .. lífið er tilgangur, og tilgangur hvers manns birtist í löngun, löngun til að gera vissa hluti......OG MÍN LÖNGUN ER EKKI AÐ BLOGGA NÚNA (nokkuð háfleig skilgreining til að segja einfaldlega að ég nenni ekki að blogga)
Eins og ég hef alltaf sagt; Hægara er að kenna heilræðin, en að halda þau.
Munum að kærleikurinn er ein að aðalgötum lífshamingjunnar. Við hann er hvorki stansmerki né biðskylda. Hann er alltaf öllum opinn - þeim sem leita hans.
Verk okkar, orð okkar og allar hugsanir okkar eru fræ sem við sáum í okkar eigin garði. Ræktum því garðinn okkar
Lifið heil!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ung í anda
26.3.2007 | 01:16
Engar eru hæðir án lægða, súper satt það!!!
Ungt fólk heldur að eldra fólk sé heimskt en eldra fólkið ... veit að hinir ungu eru það!!
Einu sinni var ég kúl og klár og ung .....
ég hef dansað eftir diskó-músík heila nótt
ég hef verið í þröngum buxum og topplausum bol og ég hef sungið með Queen hátt og snjallt og kunnað lögin og líka með "Júdas" frá Keflavík og "Logum" frá Vestmannaeyjum
ég hef mátað alla hattana í hattabúð í Köben..
ég hef hlegið þangað' til ég pissaði undir
ég hef verið í "rauða hverfinu" í Amsterdam og tippsað strippara..
ég hef sett gat í naflann á mér
Ég hef átt heima í Noregi og líka í Danmörku og kallað það heima ..
Ég hef átt heima í Vestmannaeyjum og líka í Keflavík
Ég hef reyndar bara gift mig einu sinni
Ég hef meira að segja stundaði líkamsrækt kvölds og morgna og 6 daga vikunnar
og liðið eins og ´prinsessunni á bauninni ...
ég hef leyft hættulegum geislum að tanna húðina mína. og margt margt fleira...
-eitt sinn óður, aldrei góður -segir máltækið það ekki !!??
Þetta var bara svona stutt útgáfa af mér- um mig- frá mér- til mín !
Góðar stundir!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
hamingja
23.3.2007 | 23:32

Það sem skiptir máli, er að staldra við og sjá og meta það sem við eigum.. í stað þess að girnast það sem morgundagurinn getur hugsanlega boðið. Að reyna að vera betri í dag en í gær!!!
Bara smá gullkorn fyrir þá sem óvart flækjast hér inn

Bið ykkur vel að lifa! Góða helgi

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Show must go on!!
20.3.2007 | 01:24
Það er nú orðið þannig að ég hef litlar eða engar fréttir að segja hér í Bloggheimum, en show must go on... Að hugsa er auðvelt, að framkvæma erfitt og erfiðast alls er að koma hugsunum sínum í framkvæmd Maður verður bara að taka lífinu með ró.. og sörfa eftir öldunum sem "come my way"
Falleg speki verð ég að segja, alltaf að læra, meira í dag en í gær
Já, þeir önnum köfnu gera ekki alltaf mest !!!
Ég tel að sérhver maður sé arkitekt sem leggur drög að eigin framtíð, er alltaf í tímahraki, fer alltaf fram úr kostnaði og fær sjaldnast að njóta árangur erfiðisins
En hvað liggur á ... ef við hugsum til demantsins sem í upphafi var bara þolinmóður kolamoli
Verum ung í dag!
Það gefst nægur tími til að eldast..
---
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)